Opinberun
Jesús Kristur mun koma aftur
Sýn Jóhannesar um von á Jesú Krist
Jóhannes postuli hlaut sérstaka sýn. Jóhannes sá Jesú Krist sem sýndi honum margt um fortíð og framtíð. Hann sagði Jóhannesi að skrifa það sem hann sá. Jesús vissi að hinir heilögu væru að gera sitt besta til að fylgja sér. Jesús vildi að þeir ættu von um að hann væri máttugri en illska heimsins.
Opinberunarbókin 1:1–2, 9–11, 13–15, 19; 2–3
Í sýn sinni sá Jóhannes bók sem enginn gat opnað. Þá sá Jóhannes lamb sem táknaði Jesú Krist; hann gæti opnað bókina. Jóhannes lærði að áður en jörðin var sköpuð hafði himneskur faðir valið Jesú til að vera frelsari okkar. Það var mikilvægasti þáttur áætlunar Guðs og aðeins Jesús gat gert það.
Opinberunarbókin 5
Jóhannes sá einnig dreka sem táknaði Satan. Satan var ekki hrifinn af áætlun Guðs. Hann hóf stríð á himnum. Flest andabörn himnesks föður trúðu á Jesú Krist og völdu að fylgja honum. Sum þeirra völdu þó að fylgja Satan. Vegna ákvörðunar þeirra, urðu þau að yfirgefa himininn.
Opinberunarbókin 12:3–11
Jóhannes sá að Satan og fylgjendur hans héldu áfram að berjast gegn Jesú og fylgjendum hans á jörðu. Þeir reyndu að plata fólk til að trúa ekki fagnaðarerindi frelsarans. Þar voru mörg stríð, eyðilegging og sjúkdómar.
Opinberunarbókin 6; 8–9; 12:17; 13:11–18; 17–18
Himneskur faðir sendi engla af himni með fagnaðarerindi Jesú Krists, svo hægt væri að miðla því öllum á jörðu.
Opinberunarbókin 14:6–7
Sumir myndu trúa á Jesú og halda boðorð hans eins og þeir gerðu á himnum. Vitnisburður þeirra um Jesú myndi hjálpa þeim að sigra stríðið gegn Satan.
Opinberunarbókin 12:11; 19:8–10
Jóhannes sá að Jesús Kristur mun aftur koma til jarðar. Hann verður konungur alls heimsins. Satan mun ekki hafa meira vald. Vegna Jesú verður ekki lengur sorg eða sársauki. Allt fólkið sem trúir á Jesú og heldur sáttmála við hann, mun búa með honum og himneskum föður að eilífu.
Opinberunarbókin 19:11–16; 20:1–2; 21:1–7