Lúkas 10:38–42
Marta og María
Velja það sem er mikilvægast
Marta bjó í þorpi sem hét Betanía. Þegar Jesús og lærisveinar hans komu til Betaníu, tók Marta á móti þeim á heimili sínu.
Lúkas 10:38
Meðan Jesús kenndi var Marta önnum kafin við að þjóna gestum sínum. María, systir hennar, sat nálægt Jesú og hlustaði á orð hans.
Lúkas 10:39–40
Marta var ekki ánægð með að hún ynni öll verkin ein. Henni fannst að María ætti að hjálpa í stað þess að hlusta á Jesú. Marta bað Jesú að segja Maríu að hjálpa sér.
Lúkas 10:40
Jesús sá hversu hart Marta lagði að sér. Hann sagðist hafa tekið eftir því að hún hefði miklar áhyggjur.
Lúkas 10:41
Jesús útskýrði að sumir hlutir væru mikilvægari en aðrir. Hann sagði Maríu hafa valið vel, að hlýða á orð hans. Það sem hún lærði af Jesú yrði aldrei frá henni tekið.
Lúkas 10:42