Matteus 27; Lúkas 23; Jóhannes 19
Jesús fórnar lífi sínu fyrir okkur
Fórn til að frelsa okkur frá synd og dauða
Eftir að Pílatus ákvað að krossfesta ætti Jesú, bað hann hermenn sína að færa Jesú í burtu. Þeir húðstrýktu hann, hræktu á hann, settu þyrnikórónu á höfuð hans og gerðu gys að honum.
Markus 15:15‒20
Hermennirnir létu Jesú bera þungan trékross. Þeir fóru með hann á stað rétt utan við Jerúsalem sem heitir Golgata.
Jóhannes 19:17
Hermennirnir negldu hendur og fætur Jesú við krossinn. Jesús bað himneskan föður sinn að fyrirgefa hermönnunum, því þeir vissu ekki að þeir væru að krossfesta son Guðs.
Lúkas 23:33–34; sjá einnig Þýðing Josephs Smith í neðanmálsgrein 34c
Tveir afbrotamenn voru krossfestir með Jesú þennan dag. Einn þeirra sagði við hann: „Ef þú ert Kristur, bjargaðu sjálfum þér og okkur.“
Lúkas 23:39
Hinn afbrotamaðurinn sagði að þeir ættu refsingu skilið en Jesús hefði ekkert rangt gert. Hann bað Jesú að minnast sín í ríki sínu. Jesús sagði honum að brátt myndu þeir verða saman í andaheiminum.
Lúkas 23:40–43
Margar konur sem fylgdu Jesú Kristi höfðu komið að krossinum til að vera með honum. Ein kvennanna var María, móðir Jesú. Jesús sá hana og sagði Jóhannesi, einum postula sinna, að annast hana.
Jóhannes 19:25–27; sjá einnig Lúkas 8:1–3; Markús 15:40–41
Í þrjár stundir var myrkur yfir landinu. Jesús var afar einmana. Honum fannst eins og faðir hans á himnum hefði yfirgefið hann.
Matteus 27:45–46
Að lokum vissi Jesú að hann hafði lokið þjáningu sinni. Hann sagði: „Faðir, það er fullkomnað, verði þinn vilji.“ Þá hneigði hann höfuðið og gaf upp andann. Hermaður stakk spjóti í síðu hans til að sjá hvort hann væri í raun dáinn.
Þýðing Josephs Smith, Matteus 27:54 (í Matteusi 27:50, neðanmálstilvísun a); Jóhannes 19:28–30, 34.
Þegar Jesús dó, skalf jörðin. Björg klofnuðu. Fortjald musterisins, tjaldið sem huldi helgasta stað musterisins, rifnaði í tvennt.
Matteus 27:51
Hermennirnir voru hræddir. „Sannarlega var þessi maður sonur Guðs,“ sögðu þeir.
Matteus 27:54
Lærisveinar Jesú vöfðu líkama hans í klæði og lögðu hann í gröf í garðinum. Síðar veltu þeir stórum steini fyrir grafarmunnann.
Matteus 27:57–61; Jóhannes 19:38–41