Sögur úr ritningunum
Í einingu trúarinnar – Jesús Kristur leiðir kirkju sína með postulum og spámönnum


Efesusbréfið 2:19–20; 4:11–14

Í einingu trúarinnar

Jesús Kristur leiðir kirkju sína með postulum og spámönnum

Páll og fleiri postular skíra og staðfesta nýja kirkjumeðlimi.

Postular Jesú boðuðu fagnaðarerindi hans í mörgum löndum. Fólk sem trúði fagnaðarerindinu var skírt. Páll postuli vildi að öllum fyndist þeir velkomnir í kirkju frelsarans, jafnvel þótt þeir væru frá ólíkum stöðum.

Matteus 28:19–20; Efesusbréfið 2:19

Jesús umkringdur fólki.

Páll ritaði bréf til hinna heilögu í Efesus. Hann sagði að þegar Jesús dó fyrir okkur, væri það eins og hann hefði brotið niður vegg sem aðskildi börn Guðs. Sama hvaða stað fólk kæmi frá, þá væri það ekki lengur aðkomufólk. Það gæti meðtekið fagnaðarerindið og orðið „heimamenn,“ eins og ein stór fjölskylda!

Efesusbréfið 2:11–19

Jesús kennir hópi barna með hyrningarstein byggingar í forgrunni.

Páll sagði kirkjuna vera eins og sterka byggingu. Byggingar þurfa trausta undirstöðu. Mikilvægasti steinninn í undirstöðunni er hyrningarsteinninn. Allir hinir steinarnir liggja upp að hyrningarsteininum. Jesús Kristur er aðalhyrningarsteinn kirkju sinnar.

Efesusbréfið 2:20

Myndir af fólki að kenna, þjóna og miðla fagnaðarerindinu.

Hinir sem eru undirstaða kirkjunnar eru spámennirnir og postularnir, sem bera vitni um Jesú Krist. Drottinn býður okkur líka öllum að hjálpa við að byggja upp kirkju hans – með kennslu, hirðisþjónustu, með því að miðla fagnaðarerindinu og á margan annan hátt.

Efesusbréfið 2:20; 4:11–12

Hópur barna kemur saman í einingu.

Kirkjan er nauðsynleg, sagði Páll, til að allir menn þekki Jesú Krist. Kirkja Jesú Krists er á jörðinni í dag, með trygga undirstöðu Jesú Krists og spámanna hans og postula. Fyrir tilstilli kirkju hans, getum við vaxið „í einingu trúarinnar“ og orðið líkari Jesú.

Efesusbréfið 2:21–22; 4:13