Matteus 5‒7
Jesús kennir fjallræðuna
Hjálpar okkur að verða líkari himneskum föður
Jesús og lærisveinar hans fóru upp á fjall nærri Galíleuvatni. Þar kenndi Jesús þeim hvernig við getum verið hamingjusöm og orðið líkari himneskum föður.
Matteus 5:1–2
Jesús kenndi að fólk er blessað og hamingjusamt þegar það er auðmjúkt, er hreint í hjarta og reynir að gera það sem er rétt. Fólk sem fyrirgefur öðrum getur hlotið fyrirgefningu. Þau sem elska friðinn, munu kallaðir verða börn Guðs.
Matteus 5:3–9
Jesús sagði að lærisveinar hans væru ljós fyrir heiminn – eins og borg á hæð sem allir gætu séð. Við ættum ekki að fela ljósið okkar.
Matteus 5:14
Þegar við fylgjum Jesú, erum við eins og kerti sem lýsir upp fyrir alla í herbergi. Góð verk okkar geta hjálpað fólki að trúa á himneskan föður.
Matteus 5:15–16
Jesús sagði að við ættum að elska alla – jafnvel þá sem elska okkur ekki. Við ættum að biðja fyrir þeim. Jesús kenndi að við ættum að reyna að líkjast himneskum föður. Hann kenndi að þegar við hjálpuðum fólki, þyrftum við ekki að segja öllum frá því sem við gerðum. Guð sér það góða sem við gerum og mun blessa okkur.
Matteus 5:38–48; Matteus 6:1–4
Þegar við biðjumst fyrir ættum við ekki að hafa áhyggjur af því hvað öðrum finnst um okkur. Við ættum ekki alltaf að segja sömu orðin ef við meinum þau í raun ekki. Við ættum að tala frá hjartanu. Himneskur faðir heyrir bænir okkar og veit hvers við þörfnumst. Hann mun gera það, jafnvel þótt engin annar heyri í okkur.
Matteus 6:5–8
Jesús kenndi að við ættum ekki að halda að við værum betri en annað fólk. Við ættum að muna að við höfum öll áskoranir. Í stað þess að dæma aðra, ættum við að hugsa um hvernig við getum gert betur. Við ættum að koma fram við fólk eins og við viljum að komið sé fram við okkur.
Matteus 7:1–5, 12
Jesús sagði síðan sögu af heimskum manni sem byggði hús sitt á sandi og vitrum manni sem byggði hús sitt á bjargi. Þegar regnið skall á, þá hrundi húsið á sandinum og húsið á bjarginu stóð stöðugt. Jesús sagði að ef við heyrum kenningar hans og fylgjum þeim, værum við eins og vitri maðurinn.
Matteus 7:24–28