Postulasagan 12:1–17
Engill frelsar Pétur úr fangelsi
Guð svarar bænum
Konungur að nafni Heródes líkaði ekki við kristna menn. Hann tók Jakob postula af lífi. Síðan setti hann Pétur í fangelsi. Hann setti 16 hermenn til að gæta fangelsisins.
Postulasagan 12:1–4
Þegar meðlimir kirkjunnar heyrðu þetta, báðu þeir og báðu til himnesks föður fyrir Pétri.
Postulasagan 12:5
Nótt eina var Pétur sofandi. Hann var bundinn í tvo hlekki á milli tveggja hermanna.
Postulasagan 12:6
Skyndilega skein ljós í fangelsinu og engill birtist. „Rís upp skjótt,“ sagði engillinn og hlekkirnir féllu af höndum Péturs. Maðurinn sagði Pétri að fylgja sér.
Postulasagan 12:7–8
Pétur hélt að hann væri að dreyma. Hann elti engilinn fram hjá vörðunum. Járnhliðið, sem lá til borgarinnar, laukst upp af sjálfu sér, og Pétur og engillinn gengu í gegnum það.
Postulasagan 12:9–10
Engillinn fór og Pétur gerði sér grein fyrir því að hann var ekki að dreyma. Hann vissi að Drottinn hafði sent engil til að frelsa sig.
Postulasagan 12:10–11
Pétur fór til heimilis konu að nafni María, þar sem margir kirkjumeðlimir höfðu komið til að biðjast fyrir. Hann bankaði á hurðina.
Postulasagan 12:12–13
Stúlka að nafni Róde kom til dyra. Þegar hún heyrði rödd Péturs varð hún afar glöð! Hún hljóp til að opna dyrnar.
Postulasagan 12:13–14
Þegar Róde sagði öllum að Pétur væri við dyrnar, trúðu þau henni ekki. Pétur hélt áfram að knýja á.
Postulasagan 12:15–16
Loks opnuðu þau dyrnar og sáu að það var satt. Pétur var hólpinn! Guð hafði bænheyrt þau. Pétur sagði öllum hvernig Drottinn hafði leitt hann út úr fangelsinu.
Postulasagan 12:16–17