Sögur úr ritningunum
Allir munu lífgaðir verða fyrir samfélag sitt við Krist — Páll kennir um upprisu


1. Korintubréf 15

Allir munu lífgaðir verða fyrir samfélag sitt við Krist

Páll kennir um upprisu

Páll skrifar bréf til kirkjumeðlima í Korintu. Þeir hafa safnast saman umhverfis konu sem er látin.

Sumir meðlimir kirkjunnar í borg sem hét Korinta höfðu spurningar um það sem gerist eftir að við deyjum. Þeir voru ekki vissir um að Jesús hefði í raun risið upp. Sumir sögðu, að engin upprisa hefði átt sér stað. Páll frétti af þessu og skrifaði bréf til hinna heilögu í Korintu.

1. Korintubréf 15:12–14

Hinn upprisni Jesús talar við postula sína.

Páll ritaði að upprisa Jesú Krists væri mikilvægur þáttur í fagnaðarerindi hans. „Kristur dó vegna synda okkar,“ sagði Páll, „hann reis upp á þriðja degi.“ Yfir 500 manns höfðu séð hann eftir upprisu hans, þar á meðal Páll og hinir postularnir.

1. Korintubréf 15:1–8

Páll ritar bréf; Adam og Eva yfirgefa aldingarðinn Eden; og Jesús stendur við gröfina.

Páll kenndi að ef Kristur hefði ekki risið upp, værum við öll sorgmædd og án vonar. Vegna falls Adams, munum við öll deyja, en vegna Jesú Krists, munum við öll líka rísa upp!

1. Korintubréf 15:17–22

Kona að skírast.

Páll minnti hina heilögu í Korintu á að fólk væri að skírast fyrir hina dánu. Hvers vegna þyrftum við að gera það, ef fólk sem hefði dáið myndi aldrei rísa upp aftur? Við látum skírast fyrir hina dánu, því við vitum að allir munu lifa aftur. Það veitir þeim tækifæri til að hljóta blessanir Drottins.

1. Korintubréf 15:29

Kona krýpur frammi fyrir Jesú.

Sumir heilagir í Korintu veltu fyrir sér hvernig líkamar okkar verða þegar við rísum upp. Páll sagði líkama okkar verða dýrlega. Þeir verða ekki veikburða, veikjast eða eldast. Sumir munu hafa himneska líkama, bjarta eins og sólin. Aðrir verða bjartir eins og tunglið og aðrir bjartir eins og stjörnurnar.

1. Korintubréf 15:35, 40–43; Kenning og sáttmálar 76:96–98; 88:20–23