Matteus 12:1–12; Lúkas 13:10–17
Jesús læknar konu á hvíldardegi
Gera gott á helgum degi hans
Jesús og lærisveinar hans voru á gangi á hveitiakri á hvíldardegi. Þeir voru hungraðir, svo þeir tíndu hveiti og borðuðu það. Nokkrir leiðtogar Gyðinga, sem kölluðust farísear, sáu þá. Farísearnir höfðu sett margar reglur varðandi hvíldardaginn. Það var andstætt reglum þeirra að tína hveiti.
Matteus 12:1–2
Faríesarnir spurðu Jesú hvers vegna lærisveinar hans heiðruðu ekki hvíldardaginn. Jesús sagði að þeir hefðu ekkert rangt gert. Guð gaf okkur hvíldardaginn til að blessa okkur, ekki til að gera líf okkar erfiðara.
Matteus 12:2–8; Markús 2:27
Jesús var síðar að kenna á hvíldardegi í samkunduhúsi. Jesús tók eftir konu þar. Hún gat ekki staðið upprétt. Hún hafði átt við þetta vandamál að stríða í átján ár.
Lúkas 13:10–12
Jesús Kristur bauð konunni að koma til sín. Hann lagði hendur yfir hana til að blessa hana.
Lúkas 13:12–13
Konan rétti samstundis úr sér og stóð bein. Leiðtogi samkunduhússins var reiður af því að Jesús var að lækna á hvíldardegi.
Lúkas 13:13–14
Jesús sagði að það væri rétt að hjálpa þessari konu. Það er rétt að gera góðverk á hvíldardegi. Leiðtoginn skammaðist sín og samkunduhúsið fagnaði yfir því að konan hafði orðið heil.
Lúkas 13:15–17; sjá einnig Lúkas 6:9