Jakobsbréfið 1–3
Bréf frá Jakobi
Boð um að hlýða orði Guðs en ekki bara heyra það
Jakob var sonur Maríu og einn af bræðrum Jesú Krists. Jakob var líka kirkjuleiðtogi í Jerúsalem. Hann ritaði bréf til fólks Guðs um allan heim til að hjálpa því að lifa eftir fagnaðarerindi Jesú Krists.
Jakobsbréfið 1:1
Jakob skrifaði: „Ef einhvern yðar brestur visku, þá biðji hann Guð.“ Mörgum árum síðar las drengur að nafni Joseph Smith þessi orð og ákvað að biðjast fyrir vegna spurninga sinna. Joseph Smith sagði síðar: „Ég hafði komist að því að vitnisburður Jakobs væri sannur.“ Guð svaraði bæn Josephs og hann mun líka svara okkar bænum.
Jakobsbréfið 1:5; Joseph Smith – Saga 1:11–17, 26
Jakob skrifaði einnig að við ættum að hlusta vandlega á það sem aðrir segja og reyna að verða ekki reið við þá. Þegar við erum reið getum við ekki þjónað Guði.
Jakobsbréfið 1:19–20
Jakob sagði að það væri ekki nóg að heyra bara orð Guðs; við þyrftum líka að lifa samkvæmt því. „Verðið gerendur orðsins,“ skrifaði hann, „og eigi aðeins heyrendur þess.“
Jakobsbréfið 1:22.
Að vera fylgjandi Jesú Krists, er meira en bara að trúa á Guð, útskýrði Jakob. Jafnvel djöfullinn veit að Guð er raunverulegur. Þegar við sjáum fólk sem er kalt eða hungrað, ættum við að gefa því föt og mat. Við ættum að vitja ekkna og munaðarleysingja. „Trúin ein og sér [er] dauð vanti hana verkin,“ skrifaði Jakob.
Jakobsbréfið 1:27; 2:14–20
Jakob vildi líka kenna hinum heilögu að tala vingjarnlega við fólk. Hann sagði að ef við vönduðum orð okkar, væri það eins og að stýra hesti. Við getum stýrt stórum hesti með beisli sem fest er við lítinn málmbút í munni hestsins. Orð okkar gætu líka virst smávægileg, en þau geta verið máttug.
Jakobsbréfið 3:2–3
Jakob sagði að stjórn á orðum okkar væri eins og að stýra skipi. Jafnvel þótt skipið væri stórt og vindar sterkir, getum við stýrt skipinu með því að stjórna mjög litlu stýri. Stýrið er eins og orðin okkar. Ef við getum stjórnað því sem við segjum, þá getum við gert mikinn gæfumun!
Jakobsbréfið 3:4–5
Óvinsamleg orð, útskýrði Jakob, geta verið eins og lítill neisti sem kveikir mikinn eld. Þau geta breiðst hratt út og valdið miklum sársauka. Þess vegna er mikilvægt að vanda til orða okkar.
Jakobsbréfið 3:5–6
Jakob skrifaði að notum tungu okkar til að biðja til himnesks föður. Stundum notum við þó tungu okkar til að segja eitthvað ljótt við aðra, sem eru börn himnesks föður. Jakob sagði að það ætti ekki að vera þannig.
Jakobsbréfið 3:9–10
Jakob kenndi hinum heilögu að mæla ljúf orð, með því að kenna þeim að vatnsból gæfi ekki bæði ferskvatn og fúlt vatn. Fíkjutré getur ekki gefið af sér ólífur og vínviður getur ekki gefið af sér fíkjur. Á sama hátt, ef við höfum gæsku og kærleika í hjarta okkar, ættu orð okkar líka að vera góð og kærleiksrík!
Jakobsbréfið 3:11–18