Sögur úr ritningunum
Jesús getur gert hið veika að styrk – Lexía Páls um „flein“


2. Korintubréf 12:7–10

Jesús getur gert hið veika að styrk

Lexía Páls um „flein“

Páll postuli kennir fólki um frelsarann.

Páll postuli var mikill þjónn Jesú Krists. Hann fékk margar opinberanir og kenndi fólki um frelsarann. Páll hafði þó líka margar áskoranir.

2. Korintubréf 12:7

Páll skrifar bréf til kirkjumeðlima í Korintu.

Í bréfi til kirkjumeðlima líkti Páll áskorunum sínum við það að vera með flein í holdinu. Páli fannst hann veikburða vegna hans.

2. Korintubréf 12:7

Páll biðst fyrir.

Þrisvar sinnum baðst Páll fyrir og bað Drottin að taka burtu áskorun sína. Drottinn tók hana þó ekki í burtu.

2. Korintubréf 12:8–9

Frelsarinn heldur í hendur Páls og reisir hann upp.

Þess í stað sagði Drottinn Páli að hann hefði næga náð til að gera Pál sterkan. Páll lærði að stundum getur áskorun verið af hinu góða, ef við snúum okkur til Drottins og biðjum um hjálp. Þegar okkur finnst við veikburða getur Jesús Kristur styrkt okkur, jafnvel þó að áskoranir okkar hverfi ekki.

2. Korintubréf 12:9–10