Aðfaraorð
Um Nýja testamentið
Saga Jesú Krists og fylgjenda hans
Biblían skiptist í tvo hluta: Gamla testamentið og Nýja testamentið. Í Gamla testamentinu eru ritverk spámanna frá fornum tíma. Sumir þessara spámanna skráðu að Guð lofaði að senda frelsara. Hann myndi vera sonur Guðs og frelsa okkur frá synd og dauða svo við gætum lifað með Guði á ný.
Jesaja 53:3–5; Jakob 7:11; HDP Móse 4
Nýja testamentið segir frá því hvernig þetta loforð var uppfyllt. Það segir frá fæðingu Jesú Krists, sonar Guðs.
Lúkas 2:4–7
Nýja testamentið segir einnig frá lífi Jesú. Hann bjó meðal Gyðinga og kenndi okkur hvernig lifa ætti, svo við gætum einn daginn snúið aftur til himnesks föður.
Matteus 5:1–2
Jesús blessaði fólk og þjónaði því. Hann gerði mörg kraftaverk fyrir fólk, eins og að lækna veika og reisa dána til lífs aftur.
Matteus 4:23
Jesús valdi sér tólf fylgjendur til að verða postular. Hann veitti þeim vald til að leiða kirkju sína.
Lúkas 9:1–2
Vegna þess að Jesús elskar okkur, tók hann á sig allan sársauka okkar, sorg og synd. Hann dó fyrir okkur. Þremur dögum síðar sigraðist hann á dauðanum og reis upp! Jesús Kristur lifir og vegna hans getum við iðrast synda okkar og lifað aftur eftir að við deyjum.
Fólk sem þekkti og elskaði Jesú skrifaði um allt þetta. Postular hans skrifuðu bréf til að hjálpa meðlimum kirkjunnar að styrkja trú sína á Jesú Krist. Það sem þeir skrifuðu hefur verið varðveitt í mörg, mörg ár. Þið getið nú lesið þau í Nýja testamentinu og lært hvernig fylgja á Jesú Kristi.
Lúkas 1:1–4