Lúkas 24:1–12, 36–49; Jóhannes 20
Hann er upp risinn
Jesús Kristur sigraði dauðann fyrir alla
Lærisveinar Jesú lögðu líkama hans í gröfina. Þá langaði að gera meira til að hirða um líkama hans en það var næstum hvíldardagur. Þeir hugðust koma aftur eftir hvíldardaginn til að ljúka verkinu.
Lúkas 23:52–56
Snemma morguns, á þriðja degi eftir dauða Jesú, fóru María Magdalena og fleiri til grafarinnar.
Lúkas 24:1; Jóhannes 20:1
Þegar þau komu á staðinn sáu þau að steininum fyrir grafhvelfinguna hafði verið velt frá. Þau fóru inn í gröfina en líkami Jesú var ekki þar.
Lúkas 24:2–3; Jóhannes 20:1
María hljóp til að segja Pétri og Jóhannesi að einhver hefði fjarlægt líkama Jesú. Pétur og Jóhannes hlupu að gröfinni.
Jóhannes 20:2–4
Þegar þeir komu að gröfinni, fóru Pétur og Jóhannes inn í hana. Þeir sáu að líkami Jesú var horfinn. Dúkurinn sem hann hafði verið vafinn í var enn þar inni.
Jóhannes 20:5–7
Pétur og Jóhannes fóru heim en María varð eftir grátandi við gröfina. Hún leit inn í gröfina og sá tvo engla. Þeir spurðu hana hvers vegna hún gréti. Hún sagði að einhver hefði tekið líkama Jesú og hún vissi ekki hvar hann væri.
Jóhannes 20:11–13
Þá kom Jesús en María vissi ekki að þetta var hann. Jesús spurði hana: „Kona, hví grætur þú?“ María taldi þetta vera grasgarðsvörðinn. Hún spurði hann hvort hann vissi hvar líkami Jesú væri.
Jóhannes 20:14–15
Jesús sagði: „María.“ Hún sneri sér við. Nú vissi hún að þetta var Jesús! Hún sagði við hann: „Rabbúní (meistari).“ Jesús bað hana að segja hinum lærisveinunum að hann þyrfti að fara til himnesks föður síns. María fann hina lærisveinana og sagðist hafa séð Jesú og að hann væri aftur lifandi!
Jóhannes 20:16–18
Þetta kvöld voru margir postulanna samankomnir. Þeir lokuðu dyrunum í ótta um að leiðtogar Gyðinga myndu reyna að finna þá. Allt í einu sáu þeir Jesú þar sem hann stóð meðal þeirra. Í fyrstu voru þeir hræddir. Þeir héldu að hann væri andi. Jesús sagði: „Friður sé með yður!“
Lúkas 24:33–38; Jóhannes 20:19
Jesús bauð postulunum að snerta hendur sínar og fætur. Hann vildi að þeir vissu að hann hefði líkama, ekki aðeins anda. Hann borðaði jafnvel fisk og hunangsköku með þeim. Lærisveinarnir voru svo glaðir að sjá hann!
Lúkas 24:39–44; Jóhannes 20:20
Jesús hjálpaði síðan postulum sínum að skilja ritningarnar sem kenndu um dauða hans og upprisu. Hann vildi að þeir kenndu öllum að vegna hans gætu þeir iðrast og hlotið fyrirgefningu. Postularnir yrðu vottar hans.
Lúkas 24:44–48
Tómas postuli var ekki með þeim þegar Jesús kom. Hann sagðist ekki trúa því að Jesús væri lifandi nema hann sæi naglaförin í höndum hans.
Jóhannes 20:24–25
Átta dögum síðar höfðu lærisveinarnir safnast saman. Jesús birtist aftur. Í þetta sinn var Tómas á staðnum.
Jóhannes 20:26
Jesús bauð Tómasi að snerta sárin á höndum hans og síðu. Hann sagði við Tómas: „Vertu ekki vantrúaður, vertu trúaður.“ Tómas sagði: „Drottinn minn og Guð minn.“ Nú trúði Tómas að Jesús væri upprisinn. Jesús sagði að fólk væri blessað þegar það trúir, jafnvel þótt það hafi ekki séð hann.
Jóhannes 20:27–29