Matteus 25:31–46
„Það hafið þér gert mér“
Þegar við þjónum öðrum, erum við að þjóna Jesú
Jesús Kristur sagði lærisveinum sínum að eftir að hann snýr aftur til föður síns á himnum, muni hann koma aftur til jarðar með öllum hinum heilögu englum. Á þeim degi mun fólk frá öllum þjóðum safnast saman frammi fyrir honum – fólk sem fylgdi honum og fólk sem gerði það ekki.
Matteus 25:31–33
Jesús mun segja fólkinu sem fylgdi honum að það gæti komist inn í ríki hans, því það gaf honum að borða þegar hann var hungraður. Það gaf honum að drekka þegar hann var þyrstur.
Matteus 25:34–35
Það gaf honum föt og dvalarstað þegar hann þurfti á því að halda. Það heimsótti hann þegar hann var veikur eða í fangelsi.
Matteus 25:36
Fólkið mun spyrja Jesú hvenær það hafi gert eitthvað slíkt fyrir hann. Frelsarinn mun útskýra að þegar við gerum öðrum gott, þá er það eins og við séum að gera góðverk fyrir hann.
Matteus 25:37–40
Jesús mun segja þeim sem ekki fylgdu honum að þeir geti ekki komist inn í ríki hans. Þegar hann var hungraður og þyrstur, gáfu þeir honum hvorki mat né drykk.
Matteus 25:41–42
Þeir hjálpuðu honum ekki þegar hann þurfti föt eða dvalarstað. Þeir heimsóttu hann ekki þegar hann var veikur eða í fangelsi.
Matteus 25:43
Jesús mun útskýra að þegar við veljum að hjálpa ekki einhverjum í neyð, þá erum við að velja að liðsinna þeim ekki. Þegar við veljum að hjálpa öðrum, veljum við að hjálpa Jesú.
Matteus 25:45