Lúkas 4:16–31
Jesús vitnar um hlutverk sitt
Höfnun í Nasaret
Jesús fór til Nasaret, þar sem fjölskylda hans og vinir bjuggu. Það var staðurinn þar sem hann ólst upp. Á hvíldardeginum fór hann í samkunduhúsið sem fólkið fór í til að læra ritningarnar og tilbiðja Guð.
Lúkas 4:16–17
Í samkunduhúsinu stóð Jesús upp og las ritningarvers frá spámanninum Jesaja. Ritningarversið sagði að dag einn mundi frelsari koma. Hann myndi prédika fagnaðarerindið fyrir fátækum og lækna brostin hjörtu. Hann myndi hjálpa blindum og þeim sem væru særðir.
Jesaja 61:1–2; Lúkas 4:17–19
Jesús lauk við að lesa og settist niður. Allir horfðu á hann. Hann sagði þeim að á þessum degi myndi ritningarversið sem hann las verða að veruleika. Hann væri frelsarinn.
Lúkas 4:21
Fólkið í Nasaret varð mjög undrandi á því sem Jesús sagði. Hvernig gat Jesús verið frelsarinn? Það hélt að hann væri bara sonur Maríu og Jósefs, ekki sonur Guðs. Fyrir þeim virtist hann vera venjuleg manneskja.
Lúkas 4:22
Jesús vissi að fólkið vildi að hann gerði kraftaverk til að sanna að hann væri frelsarinn. Hann kenndi að kraftaverk væru fyrir þau sem trúa og stundum gerir Guð kraftaverk fyrir þau sem ekki voru af Ísrael, vegna þess að þau hefðu meiri trú. Sumir í samkunduhúsinu voru reiðir Jesú.
Lúkas 4:23–28
Það neyddi hann út úr borginni og upp á hæð. Það vildu henda honum fram af hæðinni.
Lúk 4:28‒29
Jesús komst þó í burtu frá reiðu fólkinu.
Lúkas 4:30
Þar sem fólkið vildi ekki hafa hann í Nasaret, fór Jesús til annarrar borgar til að kenna.
Lúkas 4:31–32