Jóhannes 10:1–18
Jesús er góði hirðirinn
„Mínir sauðir heyra raust mína og ég þekki þá“
Jesús sagði fólkinu í Jerúsalem að hann væri eins og góður hirðir. Lærisveinar hans, eða fylgjendur, eru eins og sauðir hans. Góði hirðirinn elskar sauði sína. Hann þekkir nafn hvers þeirra.
Jóhannes 10:3, 14; sjá einnig Helaman 15:13
Sauðirnir þekkja rödd góða hirðisins. Þegar hann kallar, þá hlusta þeir og hlýða.
Jóhannes 10:4, 27
Góði hirðirinn annast sauði sína. Hann leiðir þá á grænar grundir, á sama hátt og Jesús Kristur leiðir okkur til eilífs lífs.
Jóhannes 10:9–10, 28
Þegar einhver annar er ráðinn til að annast sauðina, fylgja þeir honum ekki, því þeir þekkja ekki rödd hans. Þegar hætta steðjar að, hleypur hinn ráðni í burtu. Hann ann ekki sauðunum eins og góði hirðirinn.
Jóhannes 10:5, 12–13
Góði hirðirinn hleypur ekki í burtu þegar hætta steðjar að. Hann er til staðar, til að vernda sauði sína. Hann er jafnvel fús til að gefa líf sitt fyrir þá, á sama hátt og Jesús Kristur gaf líf sitt fyrir okkur, svo að við getum öðlast eilíft líf.
Jóhannes 10:11, 17–18
Jesús sagði fólkinu í Jerúsalem að hann ætti líka aðra sauði sem byggju á öðrum stöðum. Jesús sagði líka að hann myndi heimsækja þá og þeir myndu heyra kenningar hans. Mormónsbók segir frá því þegar Jesús vitjaði nokkurra annarra sauða sinna í Ameríku.
Jóhannes 10:16; 3. Nefí 15:11–24