Sögur úr ritningunum
Kornelíus og vinir hans meðtaka heilagan anda – Fagnaðarerindið er fyrir alla


Postulasagan 10

Kornelíus og vinir hans meðtaka heilagan anda

Fagnaðarerindið er fyrir alla

Kornelíus og fjölskylda hans hjálpa einhverjum í neyð.

Kornelíus var leiðtogi rómverskra hermanna. Hann og fjölskylda hans trúðu á Guð, en þau voru ekki Gyðingar og vissu ekki um Jesú Krist. Kornelíus deildi því sem hann átti með fátækum og bað oft til Guðs.

Postulasagan 10:1–2

Engill birtist Kornelíusi.

Dag einn kom engill til Kornelíusar, þar sem hann fastaði og baðst fyrir. Engillinn sagði: „Bænir þínar og ölmusur eru stignar upp til Guðs og hann minnist þeirra.“ Guð hafði séð gæsku hans. Engillinn sagði Kornelíusi að finna Pétur postula, sem dvaldi í borg sem hét Joppe. Pétur myndi segja Kornelíusi hvað gera skyldi.

Postulasagan 10:3–6, 30–32

Kornelíus segir þjónum sínum að finna Pétur.

Kornelíus sagði þjónum sínum það sem engillinn sagði. Hann sendi þá til Joppe og bað Pétur að heimsækja sig.

Postulasagan 10:7–8

Pétur krýpur og biðst fyrir.

Í Joppe var Pétur á þaki hússins og baðst fyrir. Hann var svangur og var um það bil að fara að borða, þegar hann skyndilega sá sýn.

Postulasagan 10:9–10

Pétur fær sýn.

Pétur sá stórann dúk koma niður af himni, fullan af alls konar dýrum og fuglum. Þá heyrði Pétur rödd segja, að hann ætti að eta dýrin. Þetta voru dýr sem Gyðingar máttu ekki borða. Lögmál Móse sagði að þau væru óhrein. Pétur vildi ekki borða þau.

Postulasagan 10:11–14

Pétur sér sýnina aftur.

Röddin sagði að ef Guð hefði hreinsað eitthvað, þá ætti það ekki að kallast óhreint. Sýnin endurtók sig þrisvar. Pétur velti fyrir sér merkingu þess.

Postulasagan 10:15–17

Rödd segir Pétri að fara og hitta þjóna Kornelíusar.

Á þeirri stundu sagði andinn Pétri að þrír menn væru að leita að honum. „Far hiklaust með þeim því að ég hef sent þá.“

Postulasagan 10:16–21

Pétur talar við þjóna Kornelíusar.

Mennirnir þrír voru þjónar Kornelíusar. Þeir sögðu Pétri frá englinum sem Kornelíus hafði séð og spurðu hvort Pétur gæti komið og kennt honum. Gyðingar fóru yfirleitt ekki inn á heimili fólks sem ekki voru Gyðingar og postularnir kenndu þeim því ekki fagnaðarerindið. En minnugur sýnar sinnar ákvað Pétur að fara.

Postulasagan 10:22, 28

Pétur hittir Kornelíus, fjölskyldu hans og vini.

Þegar Pétur kom, beið Kornelíus eftir honum með mörgum vinum og fjölskyldumeðlimum. Hann sagði Pétri að þeir væru fúsir að heyra hvað sem Guð byði honum að segja þeim.

Postulasagan 10:26, 33

Pétur kennir um Jesú Krist

Nú skildi Pétur, hvað Guð var að kenna honum í sýninni. Pétur sagði öllum að Guð elskar ekki eina þjóð eða hóp manna meira en aðra. Guð viðurkennir hvern þann sem fylgir honum og gerir það sem rétt er. Pétur kenndi Kornelíusi, fjölskyldu hans og vinum um Jesú Krist.

Postulasagan 10:34–43

Pétur skírir fjölskyldu og vini Kornelíusar.

Þegar hann kenndi, kom heilagur andi til allra sem hlustuðu. Pétur bauð þeim að láta skírast í nafni Jesú Krists. Pétur hafði komist að því að öll börn Guðs væru velkomin í kirkju Jesú Krists. Fagnaðarerindi Jesú Krists var prédikað öllum.

Postulasagan 10:44–48