Postulasagan 9:36–42
Tabíþa, kona sem var „mjög góðgerðarsöm“
Lífguð upp frá dauðum fyrir kraft Jesú Krists
Hún var trúfastur lærisveinn Jesú Krists. Hún bjó í bæ við sjóinn sem heitir Joppe. Hún unni því að þjóna og hjálpa fólki sem var fátækt.
Postulasagan 9:36
Tabíþa saumaði klæði og gaf þau nauðstöddum konum. Þær elskuðu Tabíþu.
Postulasagan 9:39
Dag einn varð Tabíþa mjög veik. Hún var svo veik að hún dó.
Postulasagan 9:37
Aðrir meðlimir kirkjunnar í Joppe voru afar sorgmæddir. Þeir vissu að Pétur, einn af postulum Jesú, var í nálægum bæ. Þeir sendu tvo menn til að biðja Pétur að flýta sér og koma til sín.
Postulasagan 9:38
Pétur kom þangað sem líkami Tabítu var. Sumar þeirra kvenna sem Tabíþa hafði hjálpað voru þarna. Þær sýndu Pétri klæðin sem hún hafði saumað á þær.
Postulasagan 9:39
Pétur bað allt fólkið að yfirgefa herbergið. Hann kraup og baðst fyrir.
Postulasagan 9:40
Eftir að hafa beðist fyrir, sagði Pétur: „Tabíþa, rís upp.“ Hún opnaði augun og settist upp. Pétur hjálpaði Tabíþu að rísa á fætur. Hún var aftur á lífi! Pétur kallaði á vini hennar að koma og hitta hana. Þeir voru furðu lostnir! Þeir vissu að hún hafði verið lífguð upp frá dauðum fyrir kraft Jesú Krists. Margir fleiri trúðu á hann.
Postulasagan 9:40–42