Sögur úr ritningunum
Börn ljóssins – Trúa á Jesú Krist meðan við bíðum þess að hann komi aftur


1. og 2. Þessaloníkubréf

Börn ljóssins

Trúa á Jesú Krist meðan við bíðum þess að hann komi aftur

Páll ritar bréf til fólks í Þessaloníku.

Hinir heilögu á tíma Páls væntu þess dags að Jesús Kristur kæmi aftur til jarðar. Á stað sem nefnist Þessaloníka var lífið orðið hinum heilögu erfitt. Þeir veltu fyrir sér hvort það þýddi að Jesús kæmi innan stuttrar tíðar. Páll skrifaði bréf þeim til hjálpar.

1. Þessaloníkubréf 4:16–18; 5:1–2; 2. Þessaloníkubréf 1:4

Fjölskylda sefur.

Páll sagði að enginn vissi hvenær Jesús kæmi að nýju. Það mun koma sumum á óvart, eins og þjófur sem kemur að nóttu meðan fólk væri sofandi.

1. Þessaloníkubréf 5:2–3; 2. Þessaloníkubréf 2:2

Hamingjusöm fjölskylda sem situr saman í björtu ljósi frá olíulampa.

Páll sagði hinum heilögu að þeir væru ekki í myrkri. Þar sem hinir heilögu fylgdu Jesú Kristi, væru þeir börn ljóssins!

1. Þessaloníkubréf 5:4–5

Hin hamingjusama fjölskylda miðlar annarri fjölskyldu fagnaðarerindinu.

Páll útskýrði að margir myndu snúa frá sannleikanum áður en Jesús kæmi aftur. Hann vildi að hinir heilögu, börn ljóssins, héldu áfram að fylgja Jesú og vænta komu hans. Ef við gerum þetta, sama hvað væri að gerast í heiminum, verðum við reiðubúin þegar Jesús kemur aftur.

1. Þessaloníkubréf 1:5; 2. Þessaloníkubréf 2:3