Sögur úr ritningunum
Jesús reisir Lasarus upp frá dauðum – „Ég er upprisan og lífið“


Jóhannes 11:1–46

Jesús reisir Lasarus upp frá dauðum

„Ég er upprisan og lífið“

María, Marta og Lasarus.

María, Marta og Lasarus bjuggu í borg sem hét Betanía. Þau trúðu á Jesú og hann elskaði þau. María og Marta voru systur Lasarusar.

Jóhannes 11:1, 5

Lasarus veikist.

Lasarus varð mjög veikur. Jesús var í annarri borg. María og Marta sendu honum skilaboð til að láta hann vita að vinur hans væri veikur.

Jóhannes 11:1–3

Jesús segir að hann muni reisa Lasarus upp frá dauðum.

Jesús beið í tvo daga. Hann sagði síðan lærisveinum sínum að þeir myndu fara til Betaníu. Lærisveinarnir höfðu áhyggjur af því að sumir þeirra sem bjuggu nálægt Betaníu vildu gera Jesú mein. Jesús vildi þó hjálpa Lasarusi. Jesús sagði að Lasarus hefði þegar dáið og að hann ætlaði að reisa hann upp frá dauðum.

Jóhannes 11:6–16

Marta hittir Jesú.

Marta hitti Jesú fyrir utan borgina. Hún sagði að ef Jesús hefði komið fyrr, hefði Lasarus ekki dáið. Jesús lofaði að Lasarus myndi lifa á ný.

Jóhannes 11:17–24

Marta talar við Jesú.

Jesús sagði: „Ég er upprisan og lífið.“ Hann spurði Mörtu hvort hún tryði sér. Hún sagði: „Ég trúi að þú sért Kristur, Guðs sonur.“

Jóhannes 11:25–27

Marta, María og Jesús.

Marta fór aftur að húsinu og sagði Maríu að Jesús væri kominn. María kom og féll að fótum Jesú og grét yfir bróður sínum. Jesús grét líka. Hann elskaði Lasarus, Maríu og Mörtu.

Jóhannes 11:28–36

Jesús fer að hellinum þar sem Lasarus er greftraður.

Jesús, Marta, María og fleiri fóru að hellinum þar sem Lasarus hafði verið grafinn. Stór steinn huldi opið. Jesús sagði að færa skyldi steininn frá.

Jóhannes 11:38–39

Jesús biður Mörtu um að trúa sér.

Marta sagði Jesú þá að Lasarus hefði þegar verið dáinn í fjóra daga. Jesús minnti Mörtu á loforð sitt. Hann bauð henni að trúa.

Jóhannes 11:39–40

Jesús segir Lasarusi að koma út.

Jesús bað síðan til föður síns. Hann þakkaði Guði fyrir að hlýða ávallt á hann. Jesús vildi að fólkið trúði því að Guð hefði sent hann til að vera frelsarinn. Jesús hrópaði þá: „Lasarus, kom út!“

Jóhannes 11:41–43

Lasarus gengur út úr hellinum.

Lasarus gekk út úr hellinum. Hann var enn vafinn í fötin og lökin sem hann hafði verið grafinn í. Jesús sagði fólkinu að vefja utan af honum. Margir þeirra sem fylgdust með þann dag, trúðu nú að Jesús væri sannarlega frelsarinn, sonur Guðs.

Jóhannes 11:44–45