Efesusbréfið 6:11–17
Alvæpni Guðs
Vera andlega örugg
Páll kenndi hinum heilögu í Efesus að við eigum öll í andlegri baráttu við hið illa. Á sama hátt og hermenn sem klæðast alvæpni til að vernda líkama sinn, getum við klæðst alvæpni Guðs til að vernda anda okkar.
Efesusbréfið 6:11–13
Páll líkti alvæpni hermanns við það sem verndar okkur andlega. Hann sagði sannleikann til að mynda vera eins og að girða sig belti til vopnaburðar.
Efesusbréfið 6:14
Í öðru lagi sagði Páll að réttlætið væri eins og brynja sem verndar hjarta okkar.
Efesusbréfið 6:14
Fagnaðarerindi Jesú Krists til friðar, er eins og skórnir sem við klæðumst til að verja fætur okkar.
Efesusbréfið 6:15
Trú okkar á Jesú Krist er eins og skjöldur sem verndar okkur frá Satan, á sama hátt og skjöldur verndar hermenn gegn örvum óvinar.
Efesusbréfið 6:16
Páll sagði sáluhjálp vera eins og hjálm sem verndar höfuð okkar.
Efesusbréfið 6:17
Að lokum sagði Páll að andi og orð Guðs væru eins og sverð.
Efesusbréfið 6:17
Þegar við íklæðumst öllu alvæpni Guðs, getum við staðið hugrökk gegn lygum og freistingum djöfulsins. Guð gaf okkur þetta alvæpni til að hjálpa okkur að halda anda okkar öruggum og sterkum.
Efesusbréfið 6:11–13