Markús 10:13–16
Jesús blessar lítil börn
„Slíkra er Guðs ríki“
Meðan Jesús var að kenna, komu sumir með ung börn sín til hans. Þeir vildu að Jesús blessaði börn þeirra. Lærisveinar hans reyndu að stöðva þá.
Matteus 19:13; Markús 10:13
Jesús sagði lærisveinum sínum að leyfa börnunum að koma til sín. Hann sagði lítil börn eiga heima í ríki Guðs. Hann útskýrði að ef einhver vildi búa aftur með Guði, þyrfti hann að verða sem lítið barn.
Matteus 19:14; Markús 10:14–15
Jesús tók litlu börnin síðan í fangið og blessaði þau.
Matteus 19:15; Markús 10:16