Sögur úr ritningunum
Kom og sjá – Vini boðið að fylgja Jesú


Jóhannes 1:43–51

Kom og sjá

Vini boðið að fylgja Jesú

Filippus hlustar á Jesú er hann kennir fólki.

Maður að nafni Filippus var einn af fylgjendum Jesú. Hann vissi að Jesús var frelsarinn. Filippus vildi að vinur hans, Natanael, vissi líka um Jesú.

Jóhannes 1:43–45

Filippus talar við vin sinn, Natanael.

Natanael vissi að ritningarnar segðu að Guð myndi senda frelsara. Filippus sagðist hafa fundið frelsarann – nafn hans væri Jesús og hann væri frá Nasaret.

Jóhannes 1:45

Filippus býður Natanael að koma og sjá Jesú.

Natanael trúði honum ekki í fyrstu. Hann taldi að frelsarinn gæti ekki verið frá Nasaret. „Getur nokkuð gott komið frá Nasaret?“ spurði hann. Filippus svaraði: „Kom og sjá.“

Jóhannes 1:46

Jesús heilsar Natanael.

Natanael fór með Filippusi til að hitta Jesú. Þegar Jesús sá þá koma, sagði hann að Natanael væri góður og ráðvandur maður. Natanael varð hissa. Hann hafði aldrei hitt Jesú áður. Hvernig þekkti Jesús hann?

Jóhannes 1:47–48

Jesús talar við Natanael.

Jesús sagði Natanael að hann hefði séð hann sitja undir fíkjutré áður en Filippus hafði talað við sig.

Jóhannes 1:48

Natanael krýpur fyrir Jesú.

Natanael vissi nú að Jesús væri sonur Guðs. Jesús sagði Natanael að hann myndi sjá stórkostlega hluti – eins og engla koma af himni ofan – allt vegna trúar sinnar.

Jóhannes 1:49–51