Lúkas 1:5–25, 57–80
Fæðing Jóhannesar skírara
Guð stendur við loforð gefið Elísabet og Sakaría
Sakaría og Elísabet voru trúföst og elskuðu Guð. Þau höfðu beðist fyrir um að eignast barn. Nú voru þau mjög gömul, en áttu enn engin börn.
Lúkas 1:5–7
Sakaría var prestur sem þjónaði í musterinu í Jerúsalem. Dag einn var hann útvalinn til að brenna reykelsi í helgu rými musterisins.
Lúkas 1:8–10
Skyndilega birtist engill. Sakaría varð hræddur. Engillinn sagði: Óttast þú eigi, Sakaría, því bæn þín er heyrð. Hann sagði að Sakaría og Elísabet myndu eignast son. Þau ættu að nefna hann Jóhannes. Engillinn sagði Jóhannes hafa mikilvægt verk að vinna. Hann myndi hjálpa fólki að vera undir það búið að taka á móti frelsaranum þegar hann kæmi.
Lúkas 1:12–17
Sakaría trúði varla því sem engillinn sagði. Hann og Elísabet voru of gömul til að eignast börn. Engillinn sagði að vegna þess að Sakaría trúði ekki orðum hans, myndi hann ekki geta talað fyrr en Jóhannes fæddist.
Lúkas 1:18‒20
Fólk velti fyrir sér ástæðu þess að Sakaría dvaldi svo lengi í musterinu. Þegar hann fór gat hann ekki talað. Það gat séð að eitthvað sérstakt hafði gerst.
Lúkas 1:21–23
Mánuðum síðar eignaðist Elísabet barn, alveg eins og engillinn hafði lofað. Fjölskylda þeirra og vinir voru svo hamingjusöm! Þau komu til að hitta barnið.
Lúkas 1:57–59
Þau töldu að barnið ætti að heita Sakaría, eins og faðir þess. Elísabet sagði: „Hann mun nefndur Jóhannes.“ Þau spurðu Sakaría sem gat enn ekki talað. Hann skrifaði: „Hann heitir Jóhannes.“ Allir voru undrandi.
Lúkas 1:59–63
Sakaría fékk skyndilega aftur málið. Hann þakkaði Guði og fylltist heilögum anda. Hann sagði öllum að Guð myndi eftir þeim loforðum sem hann gæfi fólki sínu. Hann sagði að Jóhannes yrði spámaður. Jóhannes myndi kenna fólki að iðrast og láta skírast. Hann myndi hjálpa því að læra af Jesú Kristi.
Lúkas 1:64–80