Sögur úr ritningunum
Jesús kennir um jarðveg, mustarðskorn, brauð og perlur – Einfaldar frásagnir til að hjálpa okkur að skilja andlegan sannleika


Matteus 13

Jesús kennir um jarðveg, mustarðskorn, brauð og perlur

Einfaldar frásagnir til að hjálpa okkur að skilja andlegan sannleika

Jesús kennir úr báti meðan fólk hlustar.

Jesús sagði oft dæmisögur. Í dæmisögunum bar Jesús algenga, hversdagslega hluti saman við mikilvægan sannleika um fagnaðarerindi sitt. Til að skilja dæmisögur, þurftu fylgjendur hans að hlusta vandlega og rýna verulega í merkingu þeirra. Dæmisögurnar hjálpuðu þeim að læra um Guðs ríki.

Matteus 13:3, 10–15

Jesús byrjar dæmisögu um mann sem gróðursetti sáðkorn.

Í einni dæmisögu var maður einn sem fór út á akur til að sá sáðkorni. Hann dreifði mörgum sáðkornum um akurinn. Sáðkornið féll í mismunandi jarðveg.

Matteus 13:3

Sum sáðkornin falla á harðan moldarstíg.

Sáðkornin lentu á hörðum moldarstíg, þar sem þau gætu aldrei spírað. Fuglar komu og átu sáðkornið sem féll þar.

Matteus 13:4

Sum sáðkornanna falla í grýttan jarðveg.

Sum sáðkornanna féllu í grýttan jarðveg. Sáðkornin spíruðu hratt, en ræturnar gátu ekki vaxið vegna grjótsins. Þegar heitt varð dóu plönturnar.

Matteus 13:5–6

Sum sáðkornin falla í jarðveg sem er fullur af illgresi.

Nokkur sáðkorn féllu í jarðveg sem var fullur af þyrnum og illgresi. Vegna illgresisins, gátu sáðkornin ekki vaxið.

Matteus 13:7

Sum sáðkornin vaxa og verða að sterkum plöntum.

Önnur sáðkorn féllu í góðan jarðveg. Þau urðu sterkar, heilbrigðar plöntur. Þau gáfu af sér mikið af ávöxtum.

Matteus 13:8

Jesús útskýrir að sáðkornin séu eins og orð Guðs.

Til að hjálpa lærisveinum sínum að skilja þetta, útskýrði Jesús merkingu dæmisögu sinnar. Sáðkornið er líkt orði Guðs. Hinar mismunandi jarðvegsgerðir eru eins og hjörtu fólks og mismunandi viðbrögð þess við að heyra orð Guðs. Góði jarðvegurinn er eins og fólk sem heyrir orð Guðs, skilur það og hlýðir honum.

Matteus 13:18–23

Jesús kennir um mustarðskorn.

Til að kenna hvernig ríki Guðs myndi vaxa, sagði Jesús frá mustarðskorni. Það er mjög lítið, en það vex og verður að tré þar sem fuglar geta dvalið í.

Matteus 13:31–32

Jesús kennir um brauð og ger.

Jesús sagði líka að ríki Guðs væri líkt súrdeigi eða geri sem kona notaði til að baka brauð. Það þarf bara örlítið af súr til að allt brauðið lyftist.

Matteus 13:33

Jesús segir dæmisögu um perlu.

Jesús sagði aðra sögu um mann sem keypti perlur. Hann fann eina sem var afar falleg og dýrmæt. Hann seldi allt sem hann átti til að geta keypt perluna. Jesús sagði þessa sögu til að kenna að blessanir fagnaðarerindisins eru svo verðmætar að við ættum að gera allt sem við getum til að hljóta þær.

Matteus 13:45–46