Sögur úr ritningunum
Jesús læknar mann sem gat ekki gengið – Líkamleg og andleg lækning


Markús 2:1‒12

Jesús læknar mann sem gat ekki gengið

Líkamleg og andleg lækning

Jesús kennir í húsi sem er fullt af fólki.

Margir vildu hlýða á kennslu Jesú. Eitt sinn var hann að kenna í húsi sem var fullt af fólki.

Markús 2:1–2.

Fólk heldur á manni til að fá Jesú til að lækna hann.

Fjórir menn komu að húsinu með vin sem gat ekki gengið. Þeir þurftu að bera hann í rúmi. Þeir hugðust fara með vin sinn til Jesú, en húsið var svo fullt af fólki að þeir komust ekki inn.

Markús 2:3‒4

Menn láta manninn síga niður í húsið.

Þeir báru því vin sinn upp á þak hússins. Þeir gerðu gat á þakið og létu vin sinn og rúm hans síga niður í húsið, mitt í mannþrönginni, við hlið Jesú.

Markús 2:4

Jesús fyrirgefur manninum.

Þegar Jesús sá trú þeirra, sagði hann við lama manninn: „Barnið mitt, syndir þínar eru fyrirgefnar.“

Markús 2:5

Sumir leiðtogar Gyðinga eru í uppnámi.

Nokkrir leiðtogar Gyðinga urðu æstir þegar þeir heyrðu þetta. Þeir héldu að einungis Guð gæti fyrirgefið syndir.

Markús 2:6–7

Maðurinn læknast og stendur á fætur.

Jesús vissi hvað þeir voru að hugsa. Til að hjálpa þeim að skilja að hann hafði mátt til að fyrirgefa syndir, gerði hann kraftaverk. Hann sagði við manninn sem ekki gat gengið: „Statt upp, tak rekkju þína og far heim til þín.“ Maðurinn stóð upp og gekk! Allir voru forviða og færðu Guði þakkir.

Markús 2:8‒12