Markús 5:21–43
Jesús læknar konu og reisir dóttur Jaírusar upp
„Óttast ekki, trú þú aðeins“
Maður að nafni Jaírus bjó í bæ nálægt Galíleuvatni með konu sinni og dóttur. Jaírus var leiðtogi í samkunduhúsinu sem Gyðingar fóru í til að tilbiðja Guð.
Markús 5:22
Dóttir Jaírusar, sem var einungis tólf ára gömul, veiktist. Hún var við það að deyja. Jaírus vissi að hún þarfnaðist hjálpar. Hann vissi líka að Jesús var í borginni þeirra.
Markús 5:22–23
Jaírus fór frá heimili sínu og fann Jesú. Hann kraup við fætur Jesú og bað hann að koma og lækna dóttur sína. Jaírus vissi að ef Jesús blessaði dóttur sína, þá myndi hún lifa. Jesús fylgdi Jaírusi heim til hans. Fjöldi fólks fylgdi honum.
Markús 5:23–24
Kona nokkur í sömu borg þarfnaðist einnig hjálpar Jesú. Hún hafði verið mjög veik í tólf ár. Hún hafði eytt öllum sínum peningum í lækna, en enginn gat læknað hana – henni versnaði bara. Hún vissi að Jesú gæti læknað sig. Hvernig kæmist hún samt til hans gegnum mannþröngina?
Markús 5:25–27
Konan trúði því að ef hún gæti aðeins snert klæði Jesú, myndi hún læknast. Hún teygði sig eftir Jesú er hann gekk hjá. Um leið og hún snerti klæði hans, læknaðist hún af sjúkdómi sínum.
Matteus 9:20; Markús 5:27–29; Lúkas 8:44
Jesús hætti samstundis göngu sinni. Hann hafði fundið kraft fara út frá sér. „Hver var það sem snart mig?“ spurði hann. Lærisveinar hans urðu ráðvilltir. Margir höfðu snert hann – þeir voru umkringdir fólki. Jesús leit í kringum sig til að sjá hver hefði snert hann.
Markús 5:30–32; Lúkas 8:45
Jesús sá konuna sem snart klæði hans. Hún sagði Jesú frá sjúkdómi sínum og að Jesús hefði læknað sig. Jesús sagði henni að láta huggast. Hún læknaðist vegna trúar sinnar á hann. „Far þú í friði,“ sagði hann við hana.
Markús 5:33–34; Lúkas 8:47–48
Þá kom maður frá húsi Jaírusar. Hann sagði að það væri um seinan: Dóttir Jaírusar hafði þegar látist. Jaírus ætti ekki að ónáða Jesú lengur.
Markús 5:35
Um leið og Jesús heyrði þetta, sagði hann við Jaírus: „Óttast ekki, trú þú aðeins.“ Síðan fóru þeir heim til Jaírusar.
Markús 5:36–38
Jaírus og kona hans leiddu Jesú þangað sem dóttir þeirra lá. Jesús tók í hönd stúlkunnar og sagði við hana: „Rís upp!“
Markús 5:41
Dóttir Jaírusar reis samstundis upp úr rúminu. Hún var ekki dáin lengur! Jesús bað Jaírus og eiginkonu hans að gefa henni eitthvað að borða. Þau undruðust það sem Jesús gerði fyrir dóttur þeirra. Hann bað þau að segja öðrum ekki frá þessu kraftaverki.
Markús 5:42–43