Sögur úr ritningunum
Jesús, kona og brunnur – Kennsla um lifandi vatn


Jóhannes 4

Jesús, kona og brunnur

Kennsla um lifandi vatn

Jesús nemur staðar við brunn til að sækja vatn.

Jesús og lærisveinar hans voru á gangi gegnum Samaríu á leið sinni til Galíleu. Þeir stöldruðu við til að sækja vatn við brunn. Meðan Jesús hvíldi sig þar, fóru lærisveinar hans til að kaupa mat.

Jóhannes 4:3–8

Jesús biður konuna við brunninn að gefa sér að drekka.

Kona frá Samaríu kom að brunninum til að fylla á vatnskerið sitt. Jesús bað hana um drykk. Konan varð undrandi. Jesús var Gyðingur og flestir Gyðingar töluðu ekki við Samverja.

Jóhannes 4:7–9

Jesús kennir konunni fagnaðarerindið.

Jesús sagði henni að þeir sem drykkju vatn úr brunninum yrðu aftur þyrstir. Hann gæti þó gefið henni „lifandi vatn“ eilífs lífs og hana myndi aldrei þyrsta. Konan sagðist vilja eitthvað af þessu „lifandi vatni.“

Jóhannes 4:10–14

Jesús segir konunni að ná í eiginmann sinn.

Jesús sagði henni að ná í eiginmann sinn. „Ég á engan eiginmann,“ sagði hún. Jesús sagði hana hafa átt fimm eiginmenn og að maðurinn sem hún byggi með væri ekki eiginmaður hennar.

Jóhannes 4:16–18

Jesús segir konunni að hann sé frelsarinn.

Konan varð undrandi yfir því að Jesús vissi þetta um hana. Hún sagðist vita að frelsari kæmi brátt. Jesús sagði henni að hann væri frelsarinn.

Jóhannes 4:19, 25–26

Jesús kennir fleirum við brunninn.

Konan skildi eftir vatnskerið sitt við brunninn og fór til borgarinnar. Hún sagði mörgum að hún hefði fundið frelsarann. Hún bauð þeim að koma og hlýða á hann kenna. Vegna þessarar konu, trúðu margir Samverjar á Jesú Krist.

Jóhannes 4:28–29, 39–42