Sögur úr ritningunum
Páll líkir kirkjunni við líkama Krists — Kennir um andlegar gjafir, einingu og kærleika


1. Korintubréf 12–13.

Páll líkir kirkjunni við líkama Krists

Kennir um andlegar gjafir, einingu og kærleika

Páll ritandi bréf með fólkið í Korintu í bakgrunni.

Korinta var stór og annasöm borg. Margir meðlimir kirkju Jesú Krists bjuggu þar. Þeir voru þó allir frá mismunandi stöðum og voru afar ólíkir hver öðrum. Páll vildi hjálpa þeim að vera sameinaðir og sjá hið góða í hver öðrum. Hann skrifaði þeim því bréf.

1. Korintubréf 1:11–13

Fólk í Korintu með ólíkar gjafir frá Guði.

Í bréfi sínu sagði Páll hinum heilögu að þeir hefðu allir sérstakar gjafir frá Guði. Sumir höfðu gjöf trúar. Aðrir höfðu þá hæfileika að gera kraftaverk. Sumir voru vitrir og aðrir gátu læknað aðra. Sumir gátu talað önnur tungumál. Allir hinir heilögu höfðu mismunandi gjafir, en þær komu allar frá Guði.

1. Korintubréf 12:3–11, 29–30

Fólk í Korintu að láta skírast.

Páll kenndi að þótt hinir heilögu væru ólíkir hver öðrum, færði trú þeirra á Jesú þá saman. Þegar þeir ákváðu að fylgja kenningum Jesú, láta skírast og ganga í kirkju hans, urðu þeir einn hópur, sameinaðir í Jesú Kristi.

1. Korintubréf 12:27

Tvær manneskjur deila brauði; tvær manneskjur á gangi saman; móðir og börn hennar.

Páll sagði kirkjuna vera eins og líkama, með höfuð, handleggi og fætur. Allir líkamshlutar gera mismunandi hluti. Eyranu ætti ekki að líða illa vegna þess að það er öðruvísi en augað. Og höfuðið getur ekki sagt við fæturna: „Ég þarfnast þín ekki.“ Hver þáttur er mikilvægur og þeir vinna allir saman.

1. Korintubréf 12:12–14

Fólk í Korintu safnaðist saman.

Páll kallaði hina heilögu í Korintu „líkama Krists.“ Hann vildi að þeir ynnu saman eins og mismunandi líkamshlutar og notuðu sínar ólíku gjafir til að hjálpa og blessa hver annan.

1. Korintubréf 12:15–27

Páll ritar bréf; Jesús gefur manni brauð.

Til að gera þetta, þurfti fólkið afar sérstaka tegund elsku sem kallast kærleikur. Það er elskan sem Jesús Kristur ber til allra. Páll sagði að kærleikur merkir að vera þolinmóður við aðra, jafnvel þegar þeir eru óvinsamlegir. Hann merkir að vera ekki dónalegur, eigingjarn og afbrýðisamur. Hann merkir að elska sannleikann og hafa von.

(1. Korintubréf 13:1–7; Moróní 7:47).

Karl gefur konu brauð.

Páll sagði við hina heilögu í Korintu að kærleikurinn varir að eilífu. Hvaða aðrar gjafir sem við höfum, þá þurfum við öll að hafa kærleika. Sérhvert okkar getur átt kærleik, ef við biðjum himneskan föður um hann af öllu hjarta og reynum að vera sannir fylgjendur Jesú Krists.

1. Korintubréf 13:1–3, 8; Moróní 7:48