Lúkas 7:1–10
Jesús læknar þjón hundraðshöfðingja
Rómverskur leiðtogi sýnir mikla trú
Hundraðshöfðingi bjó í Kapernaum, þorpi þar sem Jesús kenndi oft. Hann var leiðtogi fjölmenns hóps hermanna.
Lúkas 7:1–2
Þessi hundraðshöfðingi hafði þjón sem var honum afar kær. Þjónninn veiktist og var við það að deyja.
Lúkas 7:2
Þótt hundraðshöfðinginn væri ekki Gyðingur, hafði hann heyrt getið um Jesú. Hann trúði að Jesús hefði mátt til að gera mikil kraftaverk. Hann sendi nokkra leiðtoga Gyðinga til að biðja Jesú að koma og lækna þjón sinn.
Lúkas 7:3–4
Leiðtogarnir sögðu Jesú frá hundraðshöfðingjanum og þjóni hans. Þeir sögðu að hundraðshöfðinginn væri góður við Gyðinga. Jesús gekk í átt að húsi hundraðshöfðingjans. En áður en hann kom þangað, stöðvuðu nokkrir vinir hundraðshöfðingjans Jesú. Þeir sögðu honum að fara ekki inn í húsið.
Lúkas 7:4–6
Vinirnir sögðu að hundraðshöfðingjanum fyndist hann ekki verðugur þess að hafa Jesú í húsi sínu. Hann trúði að Jesús gæti læknað þjón hans, jafnvel úr fjarlægð!
Lúkas 7:6–8
Jesús undraðist trú hundraðshöfðingjans. Hann sagðist aldrei hafa séð svo mikla trú.
Lúkas 7:9
Þegar vinir hundraðshöfðingjans komu aftur heim til hans, var þjónninn heill að fullu. Jesús hafði læknað hann, alveg eins og hundraðshöfðinginn trúði að hann gæti gert.
Lúkas 7:10