Hebreabréfið 11–12
Lifa fyrir trú á Jesú Krist
Hann er „höfundur og fullkomnari trúar okkar“
Það var ekki alltaf auðvelt að vera fylgjandi Jesú Krists á fyrri tíma kirkjunnar. Fólk hataði stundum meðlimi kirkjunnar eða gerði gys að þeim vegna trúar þeirra. Páll vildi hjálpa þeim að halda trú sinni á Jesú Krist.
Hebreabréfið 10:32–39
Páll ritaði bréf til hinna hebresku heilögu eða gyðinganna. Hann kenndi að trú þýði að treysta á og vona eitthvað, jafnvel þótt við sjáum það ekki. Að hafa trú á Jesú Krist merkir til að mynda að treysta honum og loforðum hans, jafnvel þótt við höfum enn ekki hlotið þær blessanir sem við vonumst eftir.
Hebreabréfið 11:1, 6
Til að hjálpa hinum hebresku heilögu að takast á við áskoranir sínar með trú, minnti Páll þau á sögur um fólk í ritningunum sem hafði sterka trú.
Hebreabréfið 11:4–40
Páll sagði til að mynda frá Nóa. Guð sagði Nóa að byggja örk til að bjarga fjölskyldu sinni frá flóði. Nói hafði trú til að hlýða, jafnvel áður en hann sá rigninguna.
Hebreabréfið 11:7
Páll sagði frá Abraham og Söru, sem höfðu trú til að yfirgefa heimili sitt vegna loforðs Guðs um að leiða þau á betri stað. Þau trúðu einnig á loforð Guðs um að þau myndu eignast mjög fjölmenna fjölskyldu, jafnvel þótt þau væru orðin gömul og höfðu ekki enn eignast börn.
Hebreabréfið 11:8–16
Páll sagði líka frá Jókebed, móður Móse. Hún hafði trú til að fela Móse þegar hann var barn, til að vernda hann gegn illum konungi.
Hebreabréfið 11:23
Móse ólst upp í Egyptalandi. Hann hefði getað verið auðugur og notið þæginda. Hann gaf það þó upp á bátinn, því hann trúði á Guð og blessanir hans.
Hebreabréfið 11:24–27
Móse leiddi fólk Guðs út úr þrældómi vegna trúar sinnar. Þau gengu jafnvel þurrum fótum yfir Rauðahafið!
Hebreabréfið 11:29
Páll sagði líka frá Rahab. Hún hafði trú til að hjálpa fólki Guðs, jafnvel þótt enginn annar í borginni hennar tryði á Drottin. Trú hennar bjargaði fjölskyldu hennar.
Hebreabréfið 11:30–31
Páll sagði þessi mörgu trúardæmi geta hjálpað okkur að trúa á Jesú Krist líka, jafnvel þegar lífið væri erfitt. Við getum iðrast synda okkar og litið til Jesú, „höfundar og fullkomnara trúarinnar.“ Hann var fús til að deyja fyrir okkur, því hann vissi að friðþæging hans myndi færa mikla gleði og lækningu!
Hebreabréfið 12:1–2