Sögur úr ritningunum
Reiða sig á Jesú Krist til sáluhjálpar – Frelsuð fyrir náð hans


Rómverjabréfið 3:21–28; 5:1–11; 6:3–6

Reiða sig á Jesú Krist til sáluhjálpar

Frelsuð fyrir náð hans

Fólk að skírast.

Fólk frá mörgum ólíkum stöðum gekk í kirkju Jesú Krists. Meðlimir kirkjunnar voru kallaðir heilagir.

Rómverjabréfið 1:7

Tveir menn ræða um Móselögmálið.

Sumir hinna heilögu voru Gyðingar sem fylgdu enn lögmáli Móse. Aðrir voru það ekki. Þeir voru ósammála um það hvort þeir þyrftu að fylgja lögmáli Móse.

Rómverjabréfið 2:14–15, 23–29

Páll skrifar bréf.

Páli var ljóst að hinir heilögu höfðu þessar spurningar. Hann ritaði bréf til hinna heilögu í Róm. Hann sagði þeim að enginn yrði frelsaður einungis með því að lifa eftir Móselögmálinu. Við syndgum öll, útskýrði hann. Til að frelsast, þurfa allir að hafa trú á Jesú Krist og fylgja honum.

Rómverjabréfið 3:20–23

Mennirnir tveir lesa bréf Páls.

Páll kenndi að Guð hefði sent Jesú Krist til að taka á sig syndir okkar. Vegna fórnar Jesú, getum við öll iðrast og hlotið fyrirgefningu synda okkar.

Rómverjabréfið 3:24–31

Mennirnir tveir meðtaka sakramentið saman.

Páll kenndi að Jesús Kristur veitir okkur gjöf fyrirgefningar og styrk til að gera gott. Þessi kærleiksríka gjöf er kölluð náð Jesú Krists og fyllir okkur von og gleði. Páll sagði að þegar við erum skírð, eins og Jesús var, sé það eins og að hefja nýtt líf sem fylgjandi Jesú.

Rómverjabréfið 5:1–11; 6:3–6