Sögur úr ritningunum
Jesús og ungi ríki maðurinn – „Hvað á ég að gera til þess að öðlast eilíft líf?“


Markús 10:17–31

Jesús og ungi ríki maðurinn

„Hvað á ég að gera til þess að öðlast eilíft líf?“

Ungur maður hleypur til Jesú.

Þegar Jesús og lærisveinar hans voru á ferðalagi, kom ríkur ungur maður hlaupandi að Jesú og kraup frammi fyrir honum. Hann spurði Jesú hvað hann þyrfti að gera til að geta lifað aftur hjá himneskum föður.

Markús 10:17

Jesús minnir unga manninn á boðorðin.

Frelsarinn minnti unga manninn á að hann þekkti þegar boðorð Guðs: ekki drepa, ekki ljúga eða stela, heiðra föður þinn og móður.

Markús 10:19

Ungi maðurinn svarar Jesú.

Ungi maðurinn svaraði að hann hefði ætíð hlýtt þessum boðorðum, alveg frá því að hann var barn.

Markús 10:20

Jesús kennir unga manninum.

Jesús horfði ástúðlega á unga manninn. Hann sagði honum að hann þyrfti að gera eitt í viðbót. Hann þurfti að selja aleigu sína, gefa féð fátækum og verða einn af fylgjendum Jesú. Hann myndi þá eiga fjársjóði á himnum!

Markús 10:21

Ungi maðurinn gengur burt.

Ungi maðurinn var mjög ríkur. Hann vildi ekki gefa allt sem hann átti. Hann gekk í burtu sorgmæddur.

Markús 10:22

Jesús útskýrir að við verðum að treysta Guði, ekki ríkidæmi.

Jesús sagði að auðveldara væri úlfalda að fara gegnum nálarauga en auðmanni að komast inn í Guðs ríki. Lærisveinarnir voru hissa. „Hver getur þá orðið hólpinn?“ spurðu þeir. Jesús útskýrði að við verðum að treysta Guði til að frelsast. „Guði er ekkert um megn“ sagði hann.

Markús 10:23–30