Sögur úr ritningunum
Jesús tekinn höndum – Guðssonurinn dæmdur


Markús 14–15; Lúkas 22–23; Jóhannes 18–19

Jesús tekinn höndum

Guðssonurinn dæmdur

Júdas og nokkrir verðir koma að Getsemane.

Eftir að Jesús hafði lokið bæn sinni og þjáðst í Getsemane, kom Júdas með stóran hóp varðmanna Gyðinga. Júdas var einn postulanna. Hann vissi að Jesús fór oft í þennan garð. Leiðtogar Gyðinga höfðu greitt Júdasi fyrir að hjálpa þeim að finna Jesú svo þeir gætu tekið hann höndum.

Jóhannes 18:2–3

Pétur ræðst á þjón æðsta prestsins.

Þegar verðirnir reyndu að ná Jesú burtu, dró Pétur fram sverð. Hann hjó eyrað af þjóni æðsta prestsins.

Jóhannes 18:10

Jesús segir Pétri að leggja sverð sitt frá sér.

Jesús sagði Pétri að leggja sverð sitt frá sér. Jesús sagði að hann yrði að gera það sem faðir hans vildi.

Jóhannes 18:11

Jesús læknar eyra þjónsins.

Jesús snerti eyra þjónsins og læknaði það.

Lúkas 22:51

Farið er með Jesú í hús æðsta prestsins.

Verðirnir fóru með Jesú í hús æðsta prestsins. Aðrir leiðtogar Gyðinga voru þar líka. Þeir vildu finna ástæðu til að láta taka Jesú af lífi. Þeir komu með fólk til að bera ljúgvitni um hann.

Markús 14:53–61

Æðsti presturinn spyr Jesú hvort hann sé sonur Guðs.

Að lokum spurði æðsti presturinn Jesú hvort hann væri sonur Guðs. Jesús sagði: „Ég er sá.“

Markús 14:61–62

Æðsti presturinn og aðrir leiðtogar eru Jesú reiðir.

Þetta reitti æðsta prestinn og hina leiðtogana til reiði. Þeir börðu Jesú, hræktu á hann og gerðu gys að honum. Þeir samþykktu að hann skyldi tekinn af lífi.

Markús 14:63–65

Pétur segir fólki að hann þekki ekki Jesú.

Meðan Jesús var í húsi æðsta prestsins, beið Pétur fyrir utan. Hann sat við eld til að ylja sér. Þrisvar sagðist fólk bera kennsl á Pétur sem einn af lærisveinum Jesú. Í hvert skipti sagðist Pétur ekki þekkja Jesú.

Markús 14:54, 66–71

Pétur gengur grátandi í burtu.

Þá gól haninn og Pétur minntist þess sem Jesús hafði sagt, að Pétur myndi afneita sér þrisvar. Pétur gekk grátandi í burtu.

Markús 14:72

Leiðtogar Gyðinga fara með Jesú til Pílatusar.

Leiðtogar Gyðinga fóru með Jesú til Pílatusar, rómverska landstjórans. Fjöldi fólks kom líka. Leiðtogarnir vildu að Pílatus dæmdu Jesú til dauða. Þeir sögðu Pílatusi að Jesús kallaði sig konung Gyðinga.

Markús 15:1–3; Lúkas 23:2; Jóhannes 18:28–31

Jesús ræðir við Pílatus.

Pílatus spurði Jesú hvort hann væri konungur Gyðinga. Jesús svaraði: „Mitt ríki er ekki af þessum heimi.“ Hann útskýrði að hann hefði komið í heiminn til að kenna fólki sannleikann.

Jóhannes 18:33–37

Jesús og Pílatus standa frammi fyrir mannfjöldanum.

Pílatus sagðist ekki trúa því að Jesús hefði gert neitt rangt. En mikið af fólkinu hrópaði: „Krossfestu hann.“ Pílatus ákvað að gera það sem það vildi og láta taka Jesú af lífi.

Markús 15:12–14; Lúkas 23:14–24