Matteus 16–17
Jesús veitir postulum sínum prestdæmislykla
„Á þessum kletti mun ég byggja kirkju mína“
Dag einn spurði Jesús lærisveina sína hvern fólkið teldi hann vera. Lærisveinar hans svöruðu að sumir segðu hann vera Jóhannes skírara. Aðrir héldu að hann væri spámaður úr Gamla testamentinu sem hefði snúið aftur.
Matteus 16:13–14
Þá spurði Jesús lærisveina sína hvern þeir teldu hann vera. Pétur sagði: „Þú ert Kristur, sonur hins lifanda Guðs.“
Matteus 16:15‒16
Jesús gladdist yfir því að heyra Pétur segja þetta. Hann sagði Pétri að hann hefði ekki lært hver Jesús væri af öðru fólki. Himneskur faðir hefði opinberað honum það.
Matteus 16:17
Jesús sagði við Pétur: „Á þessum kletti mun ég byggja kirkju mína.“ Hann lofaði síðan að veita Pétri lykla prestdæmisins, eða valdsumboð frá Guði, svo að hann og hinir postularnir gætu leitt kirkju hans á jörðu.
Matteus 16:18‒19
Nokkrum dögum síðar fór Jesús með Pétur, Jakob og Jóhannes upp á hátt fjall til að biðjast fyrir.
Matteus 17:1; Lúkas 9:28
Þegar Jesús baðst fyrir, skein andlit hans eins og sólin. Jafnvel klæði hans voru björt.
Matteus 17:2; Lúkas 9:29
Þá birtust tveir spámenn úr Gamla testamentinu, Móse og Elía. Þeir ræddu við Jesú um dauða hans og upprisu, sem yrði brátt í Jerúsalem. Pétur sagði við Jesú: „Drottinn, gott er að við erum hér.“
Matteus 17:3–4; Lúkas 9:30–33 (sjá Þýðingu Josephs Smith í neðanmálstilvísun 31a)
Meðan Pétur var enn að tala skyggði yfir þá bjart ský. Þeir heyrðu rödd Guðs segja: „Þessi er minn elskaði sonur sem ég hef velþóknun á. Hlýðið á hann!“ Pétur, Jakob og Jóhannes urðu hræddir og féllu til jarðar.
Matteus 17:5–6
Jesús snerti postulana sína og sagði: „Rísið upp og óttist ekki.“ Þeir litu upp. Móse og Elía voru farnir. Á þessu fjalli tóku Pétur, Jakob og Jóhannes á móti þeim prestdæmislyklum sem Jesús hafði lofað þeim.
Matteus 17:7–9; sjá einnig Kenning og sáttmálar 27:12–13