Postulasagan 8:5–24
Símon og máttur Guðs
Læra um prestdæmi Guðs
Maður að nafni Símon bjó í Samaríu. Hann trúði þegar hann heyrði fagnaðarerindi Jesú Krists. Hann undraðist einnig kraftaverkin sem lærisveinar Jesú gerðu með mætti Guðs. Símon var skírður og margir aðrir karlar og konur í Samaríu.
Postulasagan 8:5–13
Postularnir í Jerúsalem heyrðu að fólk í Samaríu væri að láta skírast. Pétur og Jóhannes fóru til Samaríu. Þeir notuðu mátt Guðs, prestdæmið, til þess að leggja hendur yfir fólkið sem hafði verið skírt og veita því gjöf heilags anda.
Postulasagan 8:14–17
Þegar Símon sá þá Pétur og Jóhannes gera þetta, bauð hann þeim fé og sagði: „Gef mér einnig þetta vald.“ Hann vildi kaupa prestdæmi Guðs, svo hann gæti líka veitt gjöf heilags anda.
Postulasagan 8:18–19
Pétur útskýrði að enginn gæti keypt mátt Guðs. Hann væri gjöf frá Guði. Pétur sagði Símoni að hjarta hans þyrfti að breytast. Hann bauð Símoni að iðrast og biðja Guð um fyrirgefningu.
Postulasagan 8:20–23
Símoni þótti þetta leitt. Hann bað Pétur að biðja fyrir sér til að hjálpa sér að breytast.
Postulasagan 8:24