Sögur úr ritningunum
Páll og Sílas – Bjargast fyrir kraftaverk frá Drottni


Postulasagan 16:9–40

Páll og Sílas

Bjargast fyrir kraftaverk frá Drottni

Páll og Sílas ferðast saman.

Drottinn kallaði Pál og Sílas til að kenna fagnaðarerindið saman. Þeir ferðuðust til margra borga til að sjá hvernig kirkjunum þar gengi.

Postulasagan 15:40–41; 16:4–8

Páll fær sýn.

Kvöld eitt sá Páll mann frá Makedóníu í sýn biðja sig að koma til borgar sinnar. Páll og Sílas fóru þegar í stað. Þeir vissu að Guð vildi að þeir færu.

Postulasagan 16:9–10

Páll og Sílas prédika fyrir konu sem heitir Lýdía.

Þegar þeir komu til Makedóníu heyrði kona að nafni Lýdía þá kenna. Drottinn opnaði hjarta Lýdíu. Hún trúði því sem Páll kenndi og lét skírast.

Postulasagan 16:13–15

Lýdía segir Páli og Sílasi að þeir geti dvalið á heimili hennar.

Lýdía sagði Páli og Sílasi að þeir mættu dvelja í húsinu hennar á meðan þeir væru þar.

Postulasagan 16:15

Fólkið dregur Pál og Sílas út á torgið.

En ekki voru allir sáttir við að Páll og Sílas væru þarna. Sumum líkaði ekki það sem þeir kenndu. Þeir fóru með Pál og Sílas á torgið og sögðu höfuðsmönnunum að þeir væru að valda óspektum.

Postulasagan 16:16–21

Fólk er reitt Páli og Sílasi

Fólkið reiddist Páli og Sílasi. Höfuðsmenn borgarinnar rifu klæði Páls og Sílasar og sögðu að þeir skyldu lamdir.

Postulasagan 16:22–23

Páll og Sílas eru settir í fangelsi.

Síðan vörpuðu höfðingjar borgarinnar Páli og Sílasi í fangelsi. Þeir bundu fætur þeirra og settu vörð til að gæta þeirra.

Postulasagan 16:23–24

Fangabönd Páls og Sílasar eru leyst.

Þetta kvöld báðust Páll og Sílas fyrir og sungu Guði lofsöngva meðan hinir fangarnir hlustuðu. Skyndilega tók jörðin að skjálfa. Fangelsisdyrnar opnuðust og böndin losnuðu.

Postulasagan 16:25–26

Páll segir verðinum að hafa ekki áhyggjur.

Fangavörðurinn vaknaði og sá dyrnar opnar. Hann hélt að fangarnir hefðu komist undan og að hann hefði komið sjálfum sér í vanda með því að leyfa þeim að fara. Páll sagði verðinum að hafa ekki áhyggjur. Fangarnir væru þar allir enn.

Postulasagan 16:27–28

Páll segir verðinum að trúa á Jesú Krist.

Vörðurinn var hræddur. Hann féll á kné frammi fyrir Páli og Sílasi og sagði: „Hvað á ég að gjöra til að verða hólpinn?“ Þeir sögðu: „Trú þú á Drottin Jesú.“

Postulasagan 16:27–31

Páll og Sílas kenna fangaverðinum og fjölskyldu hans fagnaðarerindið.

Páll og Sílas kenndu fangaverðinum og fjölskyldu hans fagnaðarerindið. Vörðurinn annaðist um sár Páls og Sílasar. Sama kvöld skírðist hann og fjölskylda hans!

Postulasagan 16:32–33