Lúkas 17:11–19
Jesús læknar tíu líkþráa menn
Mikilvægi þakklætis
Þegar Jesús var á ferðalagi, kom hann inn í þorp nokkurt og sá tíu menn með mjög slæman húðsjúkdóm sem kallast líkþrá. Fólk með líkþrá þurfti að halda sig fjarri öllum, jafnvel fjölskyldum sínum, svo það gerði ekki aðra veika.
Lúkas 17:11–12
Mennirnir hrópuðu til Jesú og báðu hann að lækna sig. Jesús sagði þeim að fara til prestanna í bænum. Aðeins prestarnir gátu ákveðið hvort þeir mættu vera aftur meðal fólks.
Lúkas 17:13–14; sjá einnig 3. Mósebók 14:2–3
Þegar veiku mennirnir tíu gengu til að vitja prestanna, gerðist kraftaverk. Sjúkdómurinn hvarf. Þeir voru læknaðir!
Lúkas 17:14
Þegar einn mannanna sá að hann var heill, sneri hann sér við og þakkaði Guði hárri röddu. Hann var Samverji.
Lúkas 17:15–16
Maðurinn féll að fótum Jesú til að þakka honum fyrir það sem hann hafði gert. Jesús spurði hvar hinir níu mennirnir væru sem höfðu læknast. Aðeins einn þeirra hafði komið til baka til að þakka honum fyrir! Jesús sagði svo við hann: „Statt upp og far leiðar þinnar. Trú þín hefur bjargað þér.“
Lúkas 17:16–19