Sögur úr ritningunum
Stefán vitnar um Jesú Krist – Hugrakkur þjónn fórnar lífi sínu fyrir vitnisburð sinn


Postulasagan 6–7

Stefán vitnar um Jesú Krist

Hugrakkur þjónn fórnar lífi sínu fyrir vitnisburð sinn

Tveir postular með meðlimum kirkju Jesú.

Kirkjan stækkaði hratt. Það varð erfiðara fyrir postulana að annast alla meðlimina.

Postulasagan 6:1–2

Postuli veitir Stefáni prestdæmisblessun.

Postularnir ákváðu að kalla til sjö menn sem gætu hjálpað. Þeir báðu meðlimina að leita að mönnum sem væru vitrir og fullir af heilögum anda.

Postulasagan 6:3

Stefán læknar mann.

Einn af þeim sem þeir völdu var Stefán. Postularnir veittu honum blessun. Stefán hafði mikla trú og gerði mikil kraftaverk meðal fólksins.

Postulasagan 6:5–8

Stefán talar við æðsta prestinn og aðra leiðtoga.

Stefán kenndi um Jesú Krist af visku og með andanum. Leiðtogum samkunduhúsanna líkaði hins vegar ekki það sem hann kenndi. Þeir sögðu hann tala gegn Móse og gegn Guði. Þeir færðu Stefán fyrir æðsta prestinn og aðra leiðtoga.

Postulasagan 6:9–15; 7:1

Stefán kennir leiðtogunum um Jesú.

Andlit Stefáns var sem andlit engils. Hann minnti leiðtogana á að Guð hefði sent Móse til að bjarga Ísraelsmönnum, en þeir fylgdu ekki alltaf Móse. Stefán sagði að Móse væri eins og Jesús Kristur. Guð sendi Jesú til að bjarga fólki sínu, en leiðtogarnir fylgdu honum ekki. Leiðtogarnir voru Stefáni reiðir.

Postulasagan 7:20‒43, 51‒54

Stefán sér himneskan föður og Jesú Krist í sýn.

Stefán fylltur heilögum anda leit himnaríki. Hann sá Jesú Krist standa við hlið himnesks föður.

Postulasagan 7:55–56

Leiðtogarnir grípa í Stefán.

Þegar Stefán sagði leiðtogunum frá því sem hann sá, urðu þeir enn reiðari. Þeir hrópuðu af reiði og gripu í Stefán. Þeir drógu hann út úr borginni.

Postulasagan 7:57

Sál horfir á dauða Stefáns.

Þeir lögðu yfirhafnir sínar að fótum manns, er Sál hét. Síðan köstuðu þeir steinum að Stefáni til að lífláta hann. Sál var sammála því sem þeir voru að gera. Stefán baðst fyrir. Hann bað Drottin um að fyrirgefa þeim sem voru að skaða sig. Hann bað einnig Drottin um að taka á móti anda sínum í himininn.

Postulasagan 7:59–60; 8:1