Sögur úr ritningunum
Sakkeus tollheimtumaður – Klifra upp í tré til að sjá Jesú


Lúkas 19:1–10

Sakkeus tollheimtumaður

Klifra upp í tré til að sjá Jesú

Sakkeus innheimtir skatta.

Jesús heimsótti borgina Jeríkó. Þar bjó maður að nafni Sakkeus. Sakkeus var ríkur tollheimtumaður. Flestir kunnu illa við tollheimtumenn. Þeir álitu að tollheimtumenn tækju of mikið af peningum af fólkinu.

Lúkas 19:1–2

Sakkeus reynir að sjá Jesú í mannfjölda.

Sakkeus frétti að Jesús væri í borginni. Hann vildi læra meira um hann. Hann reyndi að sjá Jesú en hann gat það ekki, því það voru svo margir umhverfis hann og Sakkeus var of lágvaxinn til að sjá yfir þá. Hvernig myndi hann fá að sjá Jesú?

Lúkas 19:3–4

Sakkeus klifrar upp í tré svo hann geti séð Jesú.

Sakkeus hljóp á undan og klifraði upp í tré svo hann gæti séð Jesú. Þegar Jesús fór þar hjá, leit hann upp og sá Sakkeus í trénu. Jesús nefndi hann með nafni og sagði: „Flýt þér ofan.“ Jesús vildi heimsækja hann í hús hans. Sakkeus flýtti sér niður úr trénu. Hann var svo glaður að fá Jesú heim til sín.

Lúkas 19:4–6

Jesús vitjar Sakkeusar í húsi hans.

Fólkið í Jeríkó velti fyrir sér af hverju Jesús færi heim til Sakkeusar. Þeir álitu að Sakkeus væri syndari því hann var tollheimtumaður.

Lúkas 19:7

Jesús talar við Sakkeus og fjölskyldu hans.

Sakkeus sagði við Jesú: „Helming eigna minna gef ég fátækum.“ Hann sagði að ef hann tæki of mikið af peningum frá einhverjum, myndi hann gefa þeim enn meira til baka. Jesús sagði við Sakkeus: „Í dag hefur hjálpræði hlotnast húsi þessu.“ Jesús sagði að hann hefði komið til að finna þá sem týndir voru og bjarga þeim.

Lúkas 19:6, 8–10