Sögur úr ritningunum
Jesús læknar blindan mann – Lækning sem veitist smám saman


Markús 8:22–25

Jesús læknar blindan mann

Lækning sem veitist smám saman

Fólk kemur með blindan mann til að fá lækningu hjá Jesú.

Í bæ sem hét Betsaída kom fólk með blindan mann til Jesú. Það vildi að Jesús blessaði hann svo hann fengi séð.

Markús 8:22

Jesús blessar manninn.

Jesús tók í hönd mannsins og leiddi hann út úr bænum. Þá lagði Jesús hendur yfir manninn og blessaði hann.

Markús 8:23

Maðurinn getur nú séð, en ekki mjög vel.

Jesús spurði manninn hvort hann sæi nokkuð. Maðurinn leit upp. Hann sagðist sjá örlítið, en ekki mjög skýrt. Hann sagði að fólk liti út eins og gangandi tré.

Markús 8:23–24

Nú sér maðurinn greinilega.

Jesús blessaði manninn aftur. Í þetta sinn var allt skýrt þegar hann leit upp. Jesús hafði læknað hann!

Markús 8:25