Sögur úr ritningunum
Jesús mettar þúsundir manna – Hann er brauð lífsins


Matteus 14:13–21; Jóhannes 6

Jesús mettar þúsundir manna

Hann er brauð lífsins

Jesús ver tíma einsamall.

Jesús komst að því að Jóhannes skírari hafði verið drepinn. Hann fór á stað langt í burtu frá þorpunum, svo hann gæti átt tíma einn.

Matteus 14:13

Jesús talar við mannfjölda.

Þegar fólkið heyrði hvert Jesús hafði farið, fylgdi það honum. Jesús sá það og hann fann elsku til þeirra. Hann varði öllum deginum við að blessa og lækna það.

Matteus 14:13–14

Jesús biður postulana að gefa fólkinu eitthvað að borða.

Þegar dró að lokum dagsins, var fólkið orðið svangt. Postularnir töldu að Jesús ætti að senda fólkið aftur til þorpanna til að sækja mat. Jesús vildi samt að það yrðu um kyrrt. Hann bað postulana að gefa fólkinu eitthvað að borða.

Matteus 14:15–16

Andrés finnur dreng sem á lítið magn af mat.

Andrés postuli fann dreng sem var með fimm brauðhleifa og tvo litla fiska til að gefa fólkinu. Þar voru hins vegar fimm þúsund karlar, auk kvenna og barna, sem þurftu að borða. Hvernig gátu þeir mettað svo marga með svona litlum mat?

Matteus 14:17, 21; Jóhannes 6:8–10

Jesús biðst fyrir og blessar matinn.

Jesús bað postulana að færa sér matinn. Hann sagði fólkinu að setjast í grasið. Þá fór Jesús með bæn til að þakka himneskum föður fyrir brauðið og fiskinn og blessa það. Síðan braut hann brauðið og fiskana í bita.

Matteus 14:18–19; Jóhannes 6:10–11

Postularnir gefa fólkinu matinn.

Jesús bað postulana að gefa fólkinu brauðið og fiskinn. Allir borðuðu og allir urðu mettir. Eftir að þau höfðu borðað, voru enn tólf körfur fullar af mat!

Matteus 14:20; Jóhannes 6:11–13

Fólkið kemur aftur í leit að meiri mat.

Næsta dag kom fólkið aftur og fann Jesú þar. Jesús vissi þó að margir fylgdu honum aðeins vegna þess að hann hafði gefið þeim mat. Jesús minnti þau á að matur entist bara í stuttan tíma. Hann hefði nokkuð betra að gefa þeim.

Jóhannes 6:14, 24–27

Jesús kennir að hann sé brauð lífsins.

Jesús sagði: „Ég er brauð lífsins.“ Brauð gefur okkur líf á jörðu. Jesús Kristur getur þó gefið okkur eilíft líf með himneskum föður.

Jóhannes 6:35–58

Fólk er í uppnámi vegna þess sem Jesús er að kenna.

Mörgum líkaði ekki það sem Jesús reyndi að kenna. Þau fóru og ákváðu að fylgja Jesú ekki upp frá þessu.

Jóhannes 6:60, 66

Pétur segir Jesú að postularnir muni ekki yfirgefa hann.

Þá sagði Jesús við postulana: „Ætlið þér að fara líka?“ Pétur svaraði: „Herra, til hvers ættum við að fara? Þú hefur orð eilífs lífs.“ Postularnir hurfu ekki á braut. Þeir vissu að Jesús Kristur væri frelsarinn og sonur Guðs.

Jóhannes 6:67–69