Jóhannes 21; Matteus 28:16–20; Markús 16:15–19
Jesús biður postulana að gæta sauða sinna
Sýna Jesú elsku með því að kenna öðrum um hann
Eftir upprisu Jesú fóru Pétur og nokkrir hinna postulanna á fiskveiðar. Þótt þeir væru við veiðar alla nóttina, fengu þeir engan fisk.
Jóhannes 21:1–3
Morguninn eftir sáu postularnir Jesú á ströndinni, en vissu ekki að það var hann. Hann spurði hvort þeir hefðu veitt einhvern fisk. Þeir kváðust ekki hafa gert það.
Jóhannes 21:4–5
Jesús sagði postulunum að kasta netum sínum hægra megin við bátinn og þeir myndu veiða fisk. Postularnir gerðu það sem Jesús sagði og meira en hundrað fiskar fylltu netið! Netið var svo þungt af fiski að postularnir gátu ekki dregið það í bátinn.
Jóhannes 21:6
Þá áttaði Jóhannes sig á því hver maðurinn var. Hann sagði við Pétur: „Þetta er Drottinn.“ Pétur stökk út í vatnið og synti í átt að Jesú. Hinir postularnir komu með bátinn og fiskinn að landi. Jesús var að elda brauð og fisk og bauð postulunum að borða með sér.
Jóhannes 21:7–13
Eftir matinn spurði Jesús Pétur: „Elskar þú mig meira en þessir?“ Pétur sagði já. Því næst sagði Jesús: „Gæt þú lamba minna.“
Jóhannes 21:15
Jesús spurði Pétur þá aftur hvort hann elskaði hann. Aftur sagði Pétur já. Jesús sagði við hann: „Ver hirðir sauða minna.“
Jóhannes 21:16
Jesús spurði Pétur í þriðja sinn hvort hann elskaði hann. Pétur sagði: „Drottinn, þú veist allt. Þú veist að ég elska þig.“ Jesús sagði við hann aftur: „Gæt þú sauða minna.“ Hann vildi að Pétur annaðist fólkið sem fylgdi Jesú.
Jóhannes 21:17
Síðar bauð Jesús postulum sínum að hitta sig á fjalli. Þar sagði hann þeim að miðla fagnaðarerindi sínu um allan heim, kenna fólki boðorð hans og skíra alla sem trúðu. „Þér munuð verða vottar mínir“, sagði hann. Hann lofaði að vera með þeim og veita þeim kraft með heilögum anda.
Matteus 28:16–20; Markús 16:15–19; Postulasagan 1:8
Jesús sté síðan upp til himins í skýi. Hann fór aftur til föður síns á himnum. Þegar postularnir horfðu á hann fara, birtust tveir englar. Þeir sögðu að á sama hátt og Jesús hefði stigið upp til himna, myndi hann einhvern tíma snúa aftur til jarðar á sama hátt.
Postulasagan 1:9–11