Sögur úr ritningunum
Satan freistar Jesú – Dæmi um að sigrast á freistingu


Matteus 4:1–10

Satan freistar Jesú

Dæmi um að sigrast á freistingu

Jesús á gangi í óbyggðunum.

Eftir skírn sína, fór Jesús út í óbyggðirnar til að vera með Guði. Hann borðaði ekkert í 40 daga. Hann fastaði og baðst fyrir til að búa sig undir hlutverk sitt.

Matteus 4:1–2; sjá Þýðing Josephs Smith í athugasemdum 1b og 2c

Satan freistar Jesú til að breyta steinum í brauð.

Jesús var svangur. Satan kom og freistaði hans. Hann sagði að ef Jesús væri sonur Guðs, gæti hann breytt steinum í brauð. Jesús vildi ekki gera það. Jesús vitnaði í ritningarnar til að segja að hann lifði eftir orði Guðs, ekki bara á brauði.

Matteus 4:2‒4

Satan freistar Jesú til að stökkva ofan af musterismúrnum.

Þá leiddi heilagur andi Jesú upp á musterismúrinn. Satan freistaði Jesú til að stökkva ofan af honum. Hann sagði að ef Jesús væri sonur Guðs, myndu englar ekki leyfa að hann skaðaðist. Jesús stökk ekki. Hann sagði Satan að ritningarnar segðu að við ættum ekki að reyna Guð.

Matteus 4:5–7; sjá Þýðing Josephs Smith í athugasemdum 5a og 6a

Satan freistar Jesú til að tilbiðja sig.

Þessu næst fór heilagur andi með Jesú upp á fjall. Þaðan gat Jesús séð öll ríki heimsins. Satan kom og sagði að hann myndi gefa Jesú öll þessi ríki ef hann myndi tilbiðja sig.

Matteus 4:8–10; sjá Þýðing Josephs Smith 8a

Jesús segir Satan að fara.

Jesús sagði Satan að ritningarnar segðu að við ættum aðeins að tilbiðja Guð. Jesús bauð Satan að fara. Jesús fór til Galíleu til að kenna fagnaðarerindi sitt. Hann var fylltur krafti heilags anda.

Lúkas 4:13–14