Sögur úr ritningunum
Týndur sauður, týndur peningur og týndur sonur – Þrjár dæmisögur um elsku Guðs


Lúkas 15

Týndur sauður, týndur peningur og týndur sonur

Þrjár dæmisögur um elsku Guðs

Jesús talar og borðar með hópi fólks.

Nokkrir leiðtogar gyðinga sáu Jesú tala og borða með fólki sem þeir töldu vera syndugt. Leiðtogarnir töldu rangt af Jesú að borða með syndurum. Jesús sagði leiðtogunum þrjár sögur eða dæmisögur til að hjálpa þeim að skilja að hann vill hjálpa öllum að iðrast og hve glaður hann er þegar þeir gera það.

Lúkas 15:1–3

Hirðir er að leita að týndum sauði.

Fyrsta dæmisagan var um mann sem átti 100 sauði. Einn af sauðum hans týndist.

Lúkas 15:4

Fjárhirðirinn finnur týnda sauðinn.

Maðurinn skildi hina 99 sauðina eftir og fór að leita að hinum týnda. Hann hélt áfram að leita þar til hann fann hann.

Lúkas 15:4

Fjárhirðirinn ber týnda sauðinn á herðum sér.

Þegar hann loks fann týnda sauðinn var hann afar glaður! Hann bar sauðinn heim á herðum sér og sagði vinum sínum og nágrönnum að fagna með sér. Jesús sagði að þannig líði himneskum föður þegar einhver iðrast synda sinna og snýr aftur til hans.

Lúkas 15:5–7

Kona leitar að týndum pening.

Önnur dæmisagan var um konu sem átti 10 silfurpeninga. Þegar hún týndi einum peningnum, kveikti hún á kerti og sópaði húsið sitt í leit að honum. Hún hélt áfram að leita þar til hún fann hann.

Lúkas 15:8

Konan finnur týnda peninginn og er mjög ánægð.

Þegar hún loks fann týnda peninginn var hún afar glöð! Hún bauð vinum sínum og nágrönnum að fagna með sér. Jesús sagði að svona líði englum himins þegar einhver iðrast synda sinna.

Lúkas 15:9–10

Yngri sonurinn yfirgefur fjölskyldu sína.

Þriðja dæmisagan var um mann sem átti tvo syni. Yngri sonurinn vildi ekki búa lengur hjá föður sínum. Hann bað föður sinn um að gefa sér sinn hluta af peningum fjölskyldunnar strax. Síðan fór sonurinn að heiman og fór í fjarlægt land.

Lúkas 15:11–13

Sonurinn sóar peningunum frá föður sínum.

Sonurinn tók mjög slæmar ákvarðanir. Hann sóaði peningunum sem faðir hans hafði gefið honum.

Lúkas 15:13

Sonurinn á ekkert að borða.

Eftir að peningarnir hans voru búnir, var hann mjög hungraður. Enginn vildi gefa honum neitt að borða. Loksins fékk hann starf við að fóðra svín. Sonurinn var svo hungraður að hann óskaði þess að geta borðað svínamatinn. Hann vissi að hann yrði að snúa aftur til föður síns.

Lúkas 15:14–18

Sonurinn ákveður að spyrja föður sinn hvort hann geti orðið þjónn.

Sonurinn var þó ekki viss hvort faðir hans myndi bjóða hann velkominn aftur. Hann ákvað að spyrja föður sinn hvort hann mætti verða einn af þjónum hans.

Lúkas 15:17–19

Faðirinn er glaður að sjá son sinn.

Þegar sonurinn gekk heim sá faðir hans hann koma langt að. Faðirinn varð svo glaður að hann hljóp til sonar síns!

Lúkas 15:20

Faðirinn og sonurinn faðmast.

Faðirinn tók utan um son sinn og kyssti hann. Hann sagði þjónum sínum að koma með bestu fötin fyrir son sinn og búa til veislu. Hann vildi að allir fögnuðu og væru glaðir því sonur hans var kominn heim.

Lúkas 15:20–24

Eldri sonurinn kemur heim eftir vinnu á ökrunum.

Allan þennan tíma hafði eldri sonurinn unnið á ökrunum. Þegar hann kom aftur í húsið heyrði hann tónlist og dans. Hann spurði þjón nokkurn hvað um væri að vera. Þjónninn sagði honum að yngri bróðir hans væri kominn heim og þeir væru að halda veislu.

Lúkas 15:25‒27

Faðirinn biður eldri soninn að vera ánægður með að sá yngri sé kominn aftur.

Eldri bróðirinn var reiður. Faðir hans bauð honum til veislunnar en hann vildi ekki fara. Hann sagði föður sínum að hann hefði þjónað honum í mörg ár en enginn hefði haldið veislu fyrir hann. Faðirinn sagði við hann: „Allt mitt er þitt,“ en að það væri gott að vera hamingjusamur þegar einhver iðrast og kemur aftur heim!

Lúkas 15:28–32