Matteus 3
Jesús skírist
Setur fordæmi um hlýðni við Guð
Guð kallaði Jóhannes til að hjálpa fólki að búa sig undir komu Jesú Krists. Jóhannes kenndi fólki að iðrast og láta skírast. Fólk kallaði hann Jóhannes skírara.
Matteus 3:1–12
Jóhannes var áhrifamikill kennari. Margir komu til að hlýða á hann og láta skírast. Dag einn kom Jesús til að láta skírast.
Matteus 3:5, 13
Jóhannes vissi að Jesús hlýddi alltaf Guði. Hann þyrfti ekki að iðrast. Jóhannesi fannst hann ekki eiga að skíra Jesú. Jóhannesi fannst að Jesús ætti að skíra sig!
Matteus 3:14
Jesús sagði að hann þyrfti líka að skírast. Hann vildi hlýða öllum boðorðum föður síns. Hann vildi líka setja okkur fordæmi. Jóhannes skírði hann.
Matteus 3:13–15; 2. Nefí 31:5–7
Eftir að Jesús sté upp úr vatninu, kom heilagur andi yfir hann eins og dúfa. Himneskur faðir talaði frá himni og sagði: „Þessi er minn elskaði sonur.“ Himneskur faðir var mjög ánægður með Jesú.
Matteus 3:16‒17