Matteus 10; Lúkas 5:1–11; 6:12–16
Jesús velur postula sína
Boð um að „veiða menn“
Dag einn kom fólk að Galíleuvatni til að hlusta á Jesú kenna. Jesús kenndi því úr báti og það hlustaði á landi. Fiskimaður að nafni Simon átti bátinn.
Lúkas 5:1‒3
Þegar Jesús lauk kennslunni, bað hann Símon að sigla bátnum út á dýpri enda vatnsins. Hann sagði Símoni að setja netið sitt í vatnið til að veiða fisk. Símon sagðist hafa verið við veiðar alla nóttina og ekki fengið neinn fisk. En vegna þess að Jesús bæði hann um það, myndi hann reyna aftur.
Lúkas 5:4‒5
Símon veiddi svo marga fiska að netið hans rifnaði! Hann kallaði á vini sína á öðrum báti til að hjálpa sér. Brátt voru bátarnir svo fullir af fiski að þeir tóku að sökkva. Símon og vinir hans voru undrandi!
Lúkas 5:6–7, 9
Símon kraup frammi fyrir Jesú. Hann sagði: „Ég er syndugur maður, Drottinn.“ Hann vissi að Jesús var sendur af Guði. Jesús sagði honum að óttast ekki.
Lúkas 5:8
Jesús bauð Símoni, bróður hans Andrési, og vinum hans, Jakobi og Jóhannesi, að fylgja sér. Í stað þess að veiða fisk, myndu þeir hjálpa fólki að koma til Jesú.
Markús 1:16–17; Lúkas 5:10–11
Símon, Jakob og Jóhannes yfirgáfu fiskibáta sína og urðu postular Jesú. Jesús gaf Símoni seinna nafnið Pétur. Postuli er sérstakt vitni Jesú Krists. Jesús kallaði tólf menn til að vera postular sínir. Hann baðst fyrir til að vita hverja hann ætti að kalla. Hann veitti postulum sínum prestdæmisvald til að leiða kirkju sína.
Matteus 10; Lúkas 6:12–16; 9:1–2
Þar sem postularnir höfðu mátt Guðs, gátu þeir líka læknað veikt fólk, reist það upp frá dauðum og gert önnur kraftaverk.
Matteus 10:8
Jesús sendi postula sína til margra borga til að kenna fólkinu fagnaðarerindi sitt. Hann sagði að heilagur andi myndi hjálpa þeim að vita hvað þeir ættu að segja. Jesús sagði að sumum myndi ekki líka það sem þeir kenndu, en ef þeir þjónuðu trúfastlega yrði Guð með þeim.
Matteus 10:5–7, 19–22