Sögur úr ritningunum
Síðasta kvöldmáltíðin – Jesús kynnir sakramentið


Matteus 26; Lúkas 22; Jóhannes 13–14

Síðasta kvöldmáltíðin

Jesús kynnir sakramentið

Jesús og postular hans í Jerúsalem.

Jesús og postular hans voru í Jerúsalem til að halda hátíðlega páskahátíð gyðinga. Gyðingar héldu upp á páskahátíðina á hverju ári. Það hjálpaði þeim að minnast þess að fyrir mörgum árum voru fjölskyldur þeirra í ánauð í Egyptalandi og Guð hjálpaði þeim að flýja.

2. Mósebók 12:27

Jesús og postular hans samankomnir umhverfis borð.

Meðan þeir voru í Jerúsalem, héldu Jesús og postular hans sérstaka veislu saman. Jesú hafði hlakkað til þess að deila þessari máltíð með þeim.

Lúkas 22:7–15

Jesús laugar fót eins postula sinna.

Eftir að þeir höfðu borðað, fyllti Jesús skál með vatni. Hann byrjaði að þvo fætur postula sinna.

Jóhannes 13:4–5

Pétur spyr hvers vegna Jesús sé að þvo fætur þeirra.

Þegar komið var að Pétri, spurði hann hvers vegna Jesús væri að gera þetta. Það að þvo fætur var yfirleitt bara framkvæmt af þjónum.

Jóhannes 13:6

Jesús kennir postulum sínum hvernig elska á hver annan.

Jesús sagðist vera að þvo fætur þeirra til að setja þeim fordæmi. Hann vildi að þeir þjónuðu og elskuðu hver annan eins og hann hafði elskað þá. Ef þeir gerðu það, myndi fólk vita að þeir væru lærisveinar hans.

Jóhannes 13:14–16, 34−35

Pétur talar við Jesú.

Jesús sagði lærisveinum sínum að hann myndi brátt deyja. Pétur sagðist vera fús til að deyja fyrir Jesú.

Jóhannes 13:36–38

Jesús svarar Pétri.

Jesús vissi þó að erfiðir tímar væru fram undan. Hann sagði Pétri að áður en haninn galaði morguninn eftir, myndi Pétur segja þrisvar að hann þekkti ekki Jesú.

Jóhannes 13:38

Jesús kennir postulum sínum um heilagan anda.

Jesús vissi að postular hans yrðu áhyggjufullir og hræddir. Hann lofaði að Guð myndi senda þeim heilagan anda. Heilagur andi myndi hughreysta þá, kenna þeim og hjálpa þeim að muna eftir því sem Jesús hafði kennt þeim. Hann sagði þeim að hafa hvorki áhyggjur né óttast. Hann sagði: „Ef þér elskið mig munuð þér halda boðorð mín.“

Jóhannes 14:1, 15–16, 26–27

Jesús brýtur brauð fyrir sakramentið.

Jesús gerði síðan nokkuð afar sérstakt til að hjálpa postulunum að hafa hann ávallt í huga. Hann veitti þeim sakramentið. Fyrst blessaði hann brauð, braut það í bita og gaf postulum sínum. Jesús sagði þeim að hugsa um líkama hans, meðan þeir borðuðu brauðið. Hann bað þá að minnast þess að hann myndi deyja fyrir þá.

Matteus 26:26; Lúkas 22:19

Jesús blessar vínið fyrir sakramentið.

Jesús hellti síðan víni í bikar. Hann blessaði vínið og bauð postulunum að drekka það. Jesús sagði þeim að hugsa um blóð hans, meðan þeir drukku vínið. Hann bað þá að minnast þess að hann myndi þjást, blæða og deyja fyrir sársauka og syndir allra manna, svo við gætum iðrast og hlotið fyrirgefningu.

Matteus 26:27–28; Lúkas 22:20

Jesús kennir postulum sínum að halda boðorð sín.

Jesús útskýrði síðan að hann væri eins og vínviður og lærisveinar hans væru sem greinar. Ef grein helst tengd vínviðinum, ber hún ávöxt. Grein sem ekki er tengd vínviðinum deyr og getur ekki borið ávöxt. Jesús vildi að lærisveinar sínir yrðu ætíð nálægt honum með því að elska hver annan og halda boðorð hans.

Jóhannes 15:4–12

Jesús og postular hans á gangi til Getsemane.

Eftir að hafa kennt þetta, sungu Jesús og postular hans sálm. Þeir gengu í áttina að garði sem nefndist Getsemane.

Matteus 26:30