Lúkas 2:39–52
Drengurinn Jesús
Lærir og þroskast
Jesús ólst upp í bænum Nasaret hjá Maríu og Jósef. Með tímanum lærði hann sífellt meira um himneskan föður. Hann bjó sig undir það verk sem himneskur faðir vildi að hann framkvæmdi.
Lúkas 2:39–40; Kenning og sáttmálar 93:12–14
Þegar Jesús var tólf ára fór hann til Jerúsalem með fjölskyldu og vinum til að halda upp á páskahátíðina. Þar dvöldu þau í nokkra daga.
Lúkas 2:41‒43
Á leiðinni heim, tóku María og Jósef eftir að Jesús var ekki með í för. Þau fóru aftur til Jerúsalem til að finna hann. Þau voru mjög áhyggjufull.
Lúkas 2:44‒46
Eftir að hafa leitað Jesú í þrjá daga, fundu María og Jósef loks Jesú. Hann var í musterinu að ræða við nokkra kennara um ritningarnar. Kennararnir spurðu hann spurninga. Þeir undruðust hversu mikið Jesús vissi og skildi!
Lúkas 2:46–47; sjá einnig Þýðing Josephs Smith í neðanmálsgrein 46c
María sagði Jesú frá því hve áhyggjufull þau hefðu verið að finna hann ekki. Jesús sagði að hann væri að vinna verk himnesks föður síns. Jesús fór aftur til Nasaret með fjölskyldu sinni. Hann hlýddi Maríu og Jósef.
Lúkas 2:48–52
Jesús hélt áfram að læra. Hann varð stærri og sterkari. Himneskur faðir elskaði hann og hjálpaði honum að búa sig undir hlutverk sitt. Jesús elskaði fólkið umhverfis og það elskaði hann.
Lúkas 2:52