Postulasagan 1–4
Postular Jesú leiða kirkju hans
Kenna, skíra, lækna og miðla öllu
Eftir að Jesús snéri aftur til föður síns á himnum, voru postularnir leiðtogar kirkjunnar. Þeir kenndu fagnaðarerindi frelsarans, buðu fólki að ganga í kirkju hans og gerðu mörg kraftaverk með krafti Guðs. Jesús lofaði að hjálpa þeim með því að senda heilagan anda.
Postulasagan 1:8–13; 2:41–47
Þar sem Júdas dó, voru postularnir aðeins ellefu. Postularnir báðust fyrir til að fá að vita hvern Guð vildi láta koma í stað Júdasar og verða sérstakt vitni Jesú Krists. Guð kaus sér mann að nafni Matthías. Hann varð einn af postulunum tólf.
Postulasagan 1:15–26
Lærisveinarnir voru saman í Jerúsalem á sérstökum hátíðisdegi Gyðinga. Skyndilega var eins og vindur af himni fyllti húsið. Þeir sáu ljós sem líktist eldi sem hvíldi á þeim og þeir uppfylltust allir af heilögum anda. Vegna heilags anda gátu þau talað á öðrum tungumálum.
Postulasagan 2:1–4
Þegar fólkið í Jerúsalem heyrði af þessu, safnaðist mikill mannfjöldi saman. Þótt fólkið í hópnum væri frá mörgum löndum og talaði mismunandi tungumál, þá heyrði það hvert og eitt það sem postularnir sögðu á sínu eigin tungumáli. Fólkið var furðu lostið!
Postulasagan 2:5–13
Pétur stóð upp og talaði til mannfjöldans. Hann sagði þeim frá Jesú Kristi. Hann bar vitni um að Jesús væri frelsarinn og væri upprisinn.
Postulasagan 2:14–36
Þegar fólkið heyrði þetta fannst því að það þyrfti að breytast. Þau spurðu postulana hvað þeir ættu að gera.
Postulasagan 2:37
Pétur sagði við þá: „Takið sinnaskiptum og látið skírast í nafni Jesú Krists svo að þið öðlist fyrirgefningu syndanna og gjöf heilags anda.“ Um 3.000 manns skírðust og gengu í kirkjuna þann dag.
Postulasagan 2:38–43
Seinna fóru Pétur og Jóhannes í musterið. Þeir sáu mann sem gat ekki gengið. Hann sat þar alla daga og bað fólk um peninga.
Postulasagan 3:1–2
Maðurinn bað Pétur og Jóhannes um peninga. Þeir stöðvuðu og horfðu fast á hann. Pétur sagði: „Lít þú á okkur.“
Postulasagan 3:3-4
Pétur sagði þá hvorki hafa silfur né gull. En þeir höfðu nokkuð betra. „Í nafni Jesú Krists frá Nasaret,“ sagði hann, „statt upp og gakk.“ Pétur hjálpaði honum að rísa á fætur. Í fyrsta skipti á ævinni gat maðurinn gengið! Hann var svo glaður að hann stökk upp og gekk inn í musterið með Pétri og Jóhannesi.
Postulasagan 3:6–8
Fólkið var furðu lostið. Pétur sagði þeim að það væri ekki máttur hans eða máttur Jóhannesar sem læknaði manninn. Hann læknaðist fyrir kraft Jesú Krists og trú á hann. Pétur sagði þeim að iðrast og trúa á Jesú.
Postulasagan 3:9–26
Nokkrum leiðtogum Gyðinga líkaði ekki það sem Pétur og Jóhannes kenndu. Þeir sögðu að engum væri leyft að kenna um Jesú.
Postulasagan 4:1–18
Pétur og Jóhannes sögðust myndu hlýða Guði og Guð vildi að þeir segðu fólkinu það sem þeir vissu um Jesú Krist.
Postulasagan 4:19–20
Postularnir héldu áfram að kenna fagnaðarerindi frelsarans af miklum krafti. Sífellt fleiri gengu í kirkju hans. Fólkið var fyllt andanum. Það bar elsku hvers til annars og miðlaði öllu. Það seldi það sem það átti og gaf féið postulunum til að gefa fátækum.
Postulasagan 4:31–37