Matteus 18:21–34
Dæmisagan um þjóninn sem ekki vildi fyrirgefa
Jesús kennir um fyrirgefningu
Dag einn spurði Pétur Jesú mikilvægrar spurningar. Hann vildi vita hversu oft hann ætti að fyrirgefa fólki þegar það syndgaði. „Sjö sinnum?“ spurði Pétur. Jesús svaraði spurningu Péturs með því að segja honum sögu eða dæmisögu.
Matteus 18:15–21
Í sögunni var konungur sem hafði marga þjóna. Einn af þjónunum skuldaði konungi tíu þúsund talentur. Það var mjög mikill peningur!
Matteus 18:23–24
Þjónninn gæti aldrei greitt konunginum til baka. Konungur sagði að hann myndi selja þjóninn og fjölskyldu hans til að borga skuldina.
Matteus 18:25
Þegar þjónninn heyrði þetta, féll hann á kné. Hann sárbað konung að gefa sér meiri tíma. „Haf biðlund við mig,“ sagði hann, „og ég mun borga þér allt.“
Matteus 18:26
Konungurinn sýndi þjóni sínum miskunn. Hann ákvað að fyrirgefa honum. Þjónninn þurfti ekki að endurgreiða peningana. Hann var frjáls ferða sinna!
Matteus 18:27
Þjónninn fór þá og fann mann sem skuldaði honum litla peningaupphæð. Hann greip í manninn og sagði: „[Borgaðu mér].“
Matteus 18:28
Maðurinn féll á kné. „Haf biðlund við mig,“ sagði hann, „og ég mun borga þér allt.“ En þjónninn fyrirgaf honum ekki. Hann sendi hann í fangelsi.
Matteus 18:29–30
Þegar konungur varð þess vís, bað hann um að fá að hitta þjóninn. Konungurinn minnti þjón sinn á að honum hefði verið fyrirgefin mjög stór skuld. Hann sagði þjóni sínum að hann hefði einnig átt að fyrirgefa manninum sem skuldaði honum peninga.
Matteus 18:31–33
Við skuldum öll nokkuð sem við gætum aldrei greitt fyrir sjálf. Jesús útskýrði fyrir Pétri að Guð fyrirgæfi okkur og því ættum við líka að fyrirgefa öðrum. Við ættum ekki að hætta eftir sjö skipti heldur ætíð vera fús til að fyrirgefa.
Matteus 18:22, 34–35; sjá einnig Matteus 6:14; Kenning og sáttmálar 64:9–10